Breskir ráðherrar ósáttir við viðvaranir fyrirtækja um Brexit Stórfyrirtæki hafa varað við afleiðingum þess að Bretar yfirgefi ESB án samnings. Það telja sumir íhaldsmenn grafa undan samningaviðræðum May forsætisráðherra við sambandið. 24.6.2018 14:47
Hundruð krefjast endaloka kola í Berlín Þýskaland er enn verulega háð kolum til raforkuframleiðslu. Kol eru ein helsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda í heiminum. 24.6.2018 12:32
Spáir stormi í nótt og fram á morgundaginn Lægðin er lítil og því getur verðurspáin breyst hratt. Veðurstofan beinir því til fólks að fylgjast því vel með spám. 24.6.2018 11:55
Brugðist við hnökrum í kosningunum í Tyrklandi Myndbönd hafa birst sem virðast sýna fjölda fólks í sama kjörklefa. 24.6.2018 11:31
Ungbarn á meðal látinna í mótmælum í Níkaragva Mótmælendur segja að fjórir hafi fallið í skothríð lögreglu, þar á meðal 18 mánaða gamalt barn. Ríkisstjórn landsins hafnar því. 24.6.2018 11:09
Fernando Alonso kominn með annað augað vestur um haf Spænski heimsmeistarinn útilokar ekki að snúa sér alfarið að Indycar-mótaröðinni á næsta ári í leit sinni að sigri á Indy 500. 24.6.2018 10:42
Geislabyssa Hans Óla seldist á rúma hálfa milljón dollara Listrænn stjórnandi síðustu myndarinnar úr upphaflega Stjörnustríðsþríleiknum seldi muni úr safni sínu á uppboði í New York. 24.6.2018 10:10
Bandarísk yfirvöld segjast hafa skilað 500 börnum Enn eru þó rúmlega 2.000 börn í haldi. 24.6.2018 09:36
ESB tilbúið að svara mögulegum bílatollum Bandaríkjanna Bandaríkjaforseti hefur hótað 20% tollum á innflutta bíla frá Evrópu. 24.6.2018 09:14
Tugir fíkniefnamála til viðbótar í Laugardalnum í nótt Alls hafa um sextíu fíkniefnamál komið upp í Laugardalnum þar sem Secret Solstice-tónlistarhátíðin fer fram það sem af er helginni. 24.6.2018 08:22