Stuðningsmaður City sló markvörð Villa í höfuðið Robin Olsen, markvörður Aston Villa, var sleginn í höfuðið af stuðningsmanni Manchester City eftir leik liðanna í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. 23.5.2022 09:30
„Var hætt að vera stressuð fyrir leiki“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, fann að hún þurfti á nýrri áskorun að halda í fyrra. Hún gekk þá í raðir Bayern München frá Rosengård. 23.5.2022 09:01
Golden State einum sigri frá því að komast í úrslit í sjötta sinn á síðustu átta árum Golden State Warriors er aðeins einum sigri frá því að komast í úrslit NBA-deildarinnar eftir að hafa unnið Dallas Mavericks, 100-109, í nótt. Golden State leiðir einvígið, 3-0. 23.5.2022 08:31
ÞÞÞ hættur í fótbolta en ætlar sér stóra hluti sem dómari Skagamaðurinn Þórður Þorsteinn Þórðarson hefur lagt skóna á hilluna, aðeins 27 ára. Hann er þó ekki hættur afskiptum af fótbolta því hann hefur snúið sér að dómgæslu og ætlar sér mjög langt á því sviði. 23.5.2022 08:00
Cavani sýndi stuðningsmanni fingurinn eftir kveðjuleikinn fyrir United Edinson Cavani var ekki sáttur eftir síðasta leik sinn fyrir Manchester United og sýndi stuðningsmanni fingurinn eftir hann. 23.5.2022 07:31
Sjáðu Selfoss-heimsókn Helenu: „Ættu allir að vilja hafa eina Sif í liðinu sínu“ Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna, skellti sér á Selfoss á dögunum og afraksturinn var sýndur í þætti gærkvöldsins. 20.5.2022 14:00
Settur út af sakramentinu eftir að hafa spilað fullur og verið með dólg Snókerspilarinn Jamie O'Neill hefur verið dæmdur í bann fyrir framkomu sína á móti í undankeppni Opna norður-írska meistaramótsins í fyrra. 20.5.2022 13:01
Rose rekinn frá Dortmund Borussia Dortmund hefur sagt knattspyrnustjóranum Marco Rose upp störfum. 20.5.2022 11:16
Sjáðu brot Dags sem var í ætt við Júggabragðið Dagur Arnarsson gerði sig sekan um ljótt brot á Stiven Tobar Valencia í seinni hálfleik í leik Vals og ÍBV í úrslitum Olís-deildar karla í gær. Valur vann leikinn með tíu marka mun, 35-25. 20.5.2022 11:00
U-beygja hjá Mbappé? Svo virðist sem Kylian Mbappé hafi snúist hugur og verði áfram hjá Paris Saint-Germain í stað þess að fara til Real Madrid. 20.5.2022 10:00