Biden með fingurgómana á pálmanum: hvað gerist næst? Flestir virðast sammála um að það sé aðeins tímaspursmál þar til einhver stóru miðlanna í Bandaríkjunum ríður á vaðið og lýsir Biden sigurvegara í einhverju þeirra ríkja þar sem enn er talið og þar með kjörinn forseta. 6.11.2020 17:54
Twitter bannar Bannon sem kallar eftir afhöfðun Fauci Samfélagsmiðillinn Twitter hefur lokað á Steve Bannon, fyrrum ráðgjafa Donald Trump og ritstjóra Breitbart, eftir að Bannon kallaði eftir afhöfðun Anthony Fauci og Christopher Wray. Ummælin lét Bannon falla í hlaðvarpinu War Room, sem var dreift á samfélagsmiðlum. 6.11.2020 12:59
Hvað gera AP og Fox ef Biden tekur Georgíu? Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, hefur nú naumt forskot á Donald Trump í Georgíu en aðeins munar nokkur hundruð atkvæðum á frambjóðendunum. Forsetinn má ekki við því að tapa Georgíu og þarf sömuleiðis að tryggja sér kjörmenn Pennsylvaníu til að eiga möguleika á endurkjöri. 6.11.2020 11:03
Höfuðborgarbúar tryggi lausamuni „Á flestum svæðum á landinu hefur verið hvasst nýlega þannig að það þarf kannski ekki að hafa áhyggjur af lausamunum þar en á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki blásið svona síðan í september þannig að maður hefur alveg á tilfinningunni að þar þurfi að tryggja lausamuni fyrir veturinn.“ 5.11.2020 15:08
Einn til viðbótar smitaður í Hvassaleiti Einn íbúi greindist með Covid-19 í skimun hjá 50 íbúum Hvassaleitis 56-58 í fyrradag. Ráðist var í skimunina eftir að átta einstaklingar, sex íbúar og tveir starfsmenn, smituðust í hópsýkingu í húsinu. 5.11.2020 13:07
„Lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar“ Joe Biden, forsetaefni Demókrataflokksins, ávarpaði bandarísku þjóðina rétt í þessu og sagðist þess viss að þegar talningu atkvæða yrði lokið stæði hann uppi sem sigurvegari. „Kæru landar. Í gær sannaðist enn og aftur að lýðræðið er hjartsláttur þessarar þjóðar,“ sagði Biden m.a. 4.11.2020 21:37
Biden eygir kjörmennina 270 en Trump gæti enn sigrað Helstu miðlar hafa nú lýst Joe Biden sigurvegara forsetakosninganna í Wisconsin. Það þýðir að Biden nægir að halda naumu forskoti sínu í Michigan og Nevada til að ná 270 kjörmönnum, sem hann þarf til að tryggja sér Hvíta húsið. 4.11.2020 20:24
Harka færist í leikinn - Trump krefst endurtalningar Donald Trump hefur farið mikinn á Twitter í dag og heldur því nú bæði fram að unnið sé að því að láta atkvæði hverfa og að á sama tíma séu að „finnast“ atkvæði til handa andstæðingi hans í forsetakosningunum, Joe Biden. 4.11.2020 18:28
Fresta gildistöku umdeildrar ákvörðunar um þungunarrof Stjórnvöld í Póllandi hafa frestað gildistöku ákvörðunar stjórnlagadómstóls landsins, sem komst á dögunum að þeirri niðurstöðu að þungunarrof vegna fósturgalla bryti í bága við stjórnarskrá landsins. 3.11.2020 18:46
Átta smitaðir í hópsýkingu í Hvassaleiti Átta hafa greinst með Covid-19 í hópsýkingu sem kom upp í íbúðum fyrir eldri borgara í Hvassaleiti í síðustu viku. Tekin verða sýni hjá öllum íbúum á morgun. 3.11.2020 15:11