Oftar greint frá hósta, hálssærindum og þreytu í tengslum við B117 Hósti, hálssærindi og þreyta virðast tíðari meðal þeirra sem smitast af breska afbrigðinu af Covid-19, ef marka má könnun bresku þjóðskrárinnar. Vísindamenn eru þó ekki á einu máli um hvort niðurstöðurnar fást staðist. 28.1.2021 10:46
Aðeins fimm repúblikanar greiddu atkvæði á móti frávísun Afar ólíklegt verður að teljast að Donald Trump verði fundinn sekur í öldungadeild bandaríska þingsins þegar ákærur á hendur honum verða teknar fyrir. Meirihluti þingmanna repúblikana greiddu í dag atkvæði með tillögu um að vísa ákærunum frá. 26.1.2021 23:04
Mun fleiri „konur“ en „karlar“ breytt skráningu í kynsegin/annað Fjórtán hafa fengið kynskráningu sinni breytt hjá Þjóðskrá Íslands eftir að opnað var fyrir þann möguleika að velja „kynsegin/annað“ eftir áramót. 26.1.2021 22:07
Gráíkornaplága í Bretlandi: Stjórnvöld vilja gefa þeim „pilluna“ Bresk stjórnvöld hafa lagt blessun sína yfir hugmyndir um að beita getnaðarvörnum til að hefta vöxt gráíkornastofnsins í landinu. Umhverfisráðherrann segir íkornategundina og aðrar aðfluttar tegundir árlega valda 1,8 milljarð punda tjóni á skóglendinu. 26.1.2021 21:44
Biden og Pútín ræddust við í síma: Ber ekki alveg saman um efnið Joe Biden Bandaríkjaforseti hringdi í dag í Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Talsmönnum forsetanna ber ekki fullkomlega saman um hvaða mál voru til umræðu en Washington Post segir Biden hafa tjáð Pútín að Bandaríkin myndu verja sig gegn „óvinveittum aðgerðum“ af hálfu Rússlands. 26.1.2021 21:06
Segja fréttir um takmarkaða virkni byggja á mistúlkun gagna Þýska heilbrigðisráðuneytið og AstraZeneca hafna fréttum þess efnis að bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn Covid-19 virki ekki eins og áður hafði verið talað um. Forsvarsmenn AstraZeneca segja fréttirnar „fullkomlega rangar“ en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða mistúlkun á gögnum. 26.1.2021 19:37
Ekki kynferðisofbeldi ef káfið er utanklæða Að káfa á einstakling utanklæða er ekki kynferðisofbeldi, samkvæmt niðurstöðu yfirréttar í Mumbai. Hvergi er kveðið á um það í indverskum lögum að káf sé aðeins kynferðisofbeldi ef hold snertir hold en dómurinn er fordæmisgefandi. 26.1.2021 18:33
Sex leikskólar opnir í allt sumar: Kostnaðurinn í fyrra 44 milljónir Sex leikskólar á vegum Reykjavíkurborgar verða opnir í allt sumar; einn í hverju hverfi. Um er að ræða framhald af tilraunaverkefni sem var sett af stað sumarið 2019 en í nýlegri viðhorfskönnun sögðust 97% foreldra mjög eða frekar ánægðir með fyrirkomulagið. 26.1.2021 18:04
Ný afbrigði og bólusetningar: Full ástæða til að fara varlega Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki þurfi nema smá óheppni til að smit berist inn í landið. Þess vegna, segir hann, er nauðsynlegt að viðhafa áfram öflugt eftirlit á landamærunum og huga að persónubundnum sóttvörnum. 25.1.2021 23:54
Skotið á skrifstofur þriggja flokka og SA á einu ári Lögregla telur að skotið hafi verið á skrifstofur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins og nú Samfylkingarinnar á einu ári. Talið er að notast hafi verið við loftriffil í öllum tilvikum. 22.1.2021 16:20