Brúnt vatn og óætur matur: Líkir fangavistinni við pyntingar Það er niðurlægjandi hvernig farið er með Ghislaine Maxwell í fangelsinu í New York, segir bróðir hennar Ian Maxwell. Hann líkir fangavistinni við pyntingar en Maxwell hefur verið sökuð um að hafa útvegað vini sínum Jeffrey Epstein stúlkur undir lögaldri. 10.3.2021 21:56
Hundruð bólusettra barna í Ísrael upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir Um 600 ísraelsk börn á aldrinum 12 til 16 ára sem voru bólusett gegn Covid-19 með bóluefni Pfizer upplifðu engar alvarlegar aukaverkanir. Ungmenni eru almennt ekki bólusett en yfirvöld í landinu hafa mælt með bólusetningu einstaklinga í áhættuhópum. 10.3.2021 21:08
Sjö skjálftar yfir 3 á áttunda tímanum Frá því kl. 19.22 hafa sjö skjálftar yfir 3 mælst á Reykjanesskaga. Röðin hófst með skjálfta upp á 3,6 en nýjasti skjálftinn, sem mældist kl. 19.49 var 3,7. 10.3.2021 20:19
Fær útborgunina aftur jafnvel þótt bæði hafi verið skráð eigendur 50 prósenta hlutar Héraðsdómur Reykjaness hefur komist að þeirri niðurstöðu að maður eigi heimtingu á að fá útborgun í íbúð endurgreidda við sölu hennar í kjölfar sambandsslita, jafnvel þótt hann og sambýliskona hans hafi verið skráð fyrir jafn stórum hlut. 10.3.2021 20:04
„Það er enn vetur á Íslandi“: Kjalarnesvegur lokaður til 6 í fyrramálið hið minnsta Vegurinn um Kjalarnes er enn lokaður vegna lélegs skyggnis og verður þar til í fyrramálið. Þetta kemur fram í tísti Vegagerðarinnar. 10.3.2021 19:15
Freistaði þess að stela vörum fyrir um 46 þúsund krónur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust í dag fjórar tilkynningar um þjófnað í verslunum og þá var tilkynnt um innbrot í húsnæði í póstnúmeri 220, þar sem fatnaði og raftækjum var stolið. 10.3.2021 18:36
„Ég er verndari réttarríkisins,“ segir Jón Steinar: Spyr hvort ráðherra sé að „beygja sig“ undir gagnrýni „Þetta er allt saman bull og vitleysa og byggt á einhverjum misskilningi,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. 10.3.2021 17:49
Fjórðungur kvenna beittur ofbeldi af maka Ein af hverjum fjórum konum hefur verið beitt líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi af hálfu eiginmanns eða karlkyns maka samkvæmt stærstu rannsókn sem gerð hefur verið á ofbeldi gegn konum. 10.3.2021 06:18
Þrír stórir skjálftar á tólfta tímanum en enginn órói Þrír stórir skjálftar urðu á tólfta tímanum í kvöld en enginn órói hefur mælst í kjölfarið, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir urðu allir við Fagradalsfjall og fundust vel á suðvesturhorninu. 9.3.2021 23:08
Þrjú útköll vegna heimilisofbeldis Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var nú síðdegis og í kvöld þrisvar kölluð út vegna heimilisofbeldis; í póstnúmerum 104, 105 og 108. 9.3.2021 23:00