Skoðaði staðsetningu stúlkunnar hátt í 150 sinnum fyrir árásina Pilturinn sem sætir ákæru eftir hnífstunguárás á menningarnótt skoðaði staðsetningu einnar stúlkunnar sem fyrir árásinni varð hátt í hundrað og fimmtíu sinnum á degi árásarinnar. Forstjóri Persónuverndar hvetur börn og fullorðna til vitundar um hætturnar sem því geta fylgt að deila viðkvæmum upplýsingum á borð við staðsetningu með öðrum. 26.2.2025 19:00
Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Þorsteinn Skúli Sveinsson, frambjóðandi til formanns VR segir skýringar Ragnars Þórs Ingólfssonar, um hvers vegna hann þáði sex mánaða biðlaun frá félaginu eftir að hann tók sæti á Alþingi, hjákátlegar. Allir fjórir frambjóðendur til formanns VR eru sammála um að ekki sé við hæfi að fráfarandi formaður þiggi biðlaun þegar viðkomandi hefur þegar gengið í önnur störf. Stjórn VR hefur þegar tekið ákvörðun um breytingar á skilyrðum fyrir greiðslu biðlauna. 26.2.2025 14:29
Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Afar algengt er að ungmenni deili staðsetningu sinni með vinum og kunningjum í gegnum hin ýmsu snjallsímaforrit. Því fylgja kostir og gallar að deila staðsetningu sinni með öðrum en sérfræðingur óttast að vanþekking ríki um þær hættur sem þessu geta fylgt. Það sé algeng upplifun barna að ókunnugir reyni að nálgast þau. 25.2.2025 20:05
„Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Hátt í þrjátíu prósent leigjenda á Íslandi búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað sem er vel yfir meðaltali innan OECD. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun áætlar að leiguverð muni halda áfram að hækka á næstu misserum. Skammtímaleiga er meðal þess sem skýrir hærra leiguverð en nær fimmta hver íbúð í miðborg Reykjavíkur er skráð á Airbnb 25.2.2025 13:02
Drónaframleiðsla, sprengjuleit og innviðauppbygging meðal þess sem Ísland styrkir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ítrekaði stuðning Íslands við Úkraínu og gerði málefni barna, kvenna og hinsegin fólks að umræðuefni í ávarpi í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag. Þorgerður segir að aukinn stuðningur Íslands við Úkraínu nýtist með fjölbreyttum hætti í takt við þarfir Úkraínumanna, meðal annars við áframhaldandi jarðsprengjuleit, uppbyggingu orkuinnviða og færanlegra sjúkrahúsa og til beinna vopnakaupa og -framleiðslu til dæmist með því að styðja við drónaframleiðslu í Úkraínu. 24.2.2025 21:15
Kristrún í Kænugarði: „Mjög tilfinningaþrungið ástand hérna“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir tilfinningaþrungið ástand ríkja í Úkraínu en hún var meðal þeirra leiðtoga sem heimsóttu Kænugarð í dag. Forseti Úkraínu vonar að stríðinu ljúki áður en árið er á enda, en í dag eru þrjú ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Íslensk stjórnvöld hafa boðað aukinn varnarstuðning til Úkraínu sem verður um 3,6 milljarðar á þessu ári og mun meðal annars nýtast til vopnakaupa. 24.2.2025 20:02
Tveir sérlega hættulegir gómaðir á Íslandi og gríðarleg fjölgun verkefna Verkefnum alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra hefur fjölgað gífurlega á milli ára en á aðeins fimm árum er um að ræða meira en tvöföldun á fjölda verkbeiðna til deildarinnar. Í fyrra sinnti deildin á fjórða tug verkefna sem tengjast handtökuskipunum frá Evrópu og voru tveir „sérlega hættulegir“ glæpamenn handteknir á Íslandi í fyrra í gegnum samstarfið. Aðstoðarbeiðnir vegna slíkra mála eru ekki þær einu sem hefur fjölgað hjá deildinni. 19.2.2025 06:48
Hulda ráðin framkvæmdastjóri Nox á Íslandi Hulda Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri heilbrigðistæknifyrirtækisins Nox Medical. Hulda tekur við starfinu af Ingvari Hjálmarssyni en hún tekur jafnframt sæti í í framkvæmdastjórn móðurfélgas fyrirtækisins, Nox Health í Bandaríkjunum. 18.2.2025 14:08
Kærðir fyrir að stunda fólksflutninga í óleyfi Lögreglan á Suðurlandi hefur kært tvo aðila í vikunni fyrir að stunda farþegaflutninga án þess að hafa tilskilin leyfi fyrir hendi. Sérstök áhersla hefur verið lögð á eftirlit með rekstrarleyfi og réttindum ökumanna til að stunda fólksflutninga í atvinnuskyni þessa vikuna hjá embættinu. 18.2.2025 13:40
Þriðjungur flugvéla Play leigðar út í næstum þrjú ár Þrjár af tíu flugvélum í flota flugfélagsins Play verða leigðar út til annarra félaga fram eftir árinu 2027. Forstjóri félagsins segir um arðbæra ráðstöfun að ræða sem borgi sig fyrir rekstur félagsins. 18.2.2025 08:59
Borgarstjóra falið að beita sér fyrir því að einkaflug á Reykjavíkurflugvelli fari annað Innlent