„Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Tónlistarmaðurinn Magnús Valur Willemsson Verheul notast við listamannsnafnið Mt. Fujitive og er með um 300 þúsund mánaðarlega hlustendur á streymisveitunni Spotify. Lög hans eru sömuleiðis sum með tugi milljóna spilanna en þrátt fyrir það hefur Magnús Valur látið tiltölulega lítið fyrir sér fara. Blaðamaður ræddi við hann um tónlistina og tilveruna. 28.10.2024 15:03
Ragga Holm og Elma eignuðust dreng Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm og kærastan hennar Elma Valgerður eignuðust frumburð sinn þann 22. október síðastliðinn. Öllum heilsast vel og segist Ragga ekki geta sett það í orð hve stolt hún er af konunni sinni. 28.10.2024 11:01
Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Stórstjarnan og tónlistarkonan Laufey Lín heldur ótrauð áfram ævintýrum sínum vestanhafs þar sem hún hefur slegið í gegn. Helginni eyddi hún í Los Angeles þar sem hún er búsett með engum öðrum en Oliviu Rodrigo og Chappell Roan, sem eru með stærstu tónlistarstjörnum heims í dag. 28.10.2024 10:01
„Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ „Þegar ég var bara sjö ára gömul segi ég við konu sem var að vinna á göngunum í grunnskólanum mínum: Þú þarft að muna eftir mér. Birna Rún Eiríksdóttir, mundu nafnið því ég verð nefnilega mjög þekkt leikkona. Ég veit ekkert hvaðan þetta kom,“ segir leikkonan, veislustjórinn, TikTok stjarnan og uppistandarinn Birna Rún, sem er viðmælandi í Einkalífinu. 27.10.2024 07:01
Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn Lögfræðingurinn Marta Matthíasdóttir er búsett í París um þessar mundir og var það ákveðin skyndiákvörðun hjá henni. Hún er þar í viðbótar meistaranámi í lögfræði og nýtur þess sem Parísarborg hefur upp á að bjóða. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti. 26.10.2024 07:01
Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig „Það var kannski mesta sjokkið að vera komin rúma þrjá mánuði þegar ég fæ staðfest að ég sé ólétt. En ég er alveg viss um að þetta átti að gerast. Ég veit ekkert hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki átt hana,“ segir leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir sem varð ólétt átján ára gömul og byrjaði í Listaháskólanum með nokkurra mánaða gamalt barn. Birna Rún er viðmælandi í Einkalífinu. 24.10.2024 07:03
Óneitanlega óhugnanlegt að horfast í augu við ljón Vörumerkjastjórinn og lífskúnstnerinn Gyða Dröfn starfar hjá Ölgerðinni og fer svo í ævintýraleg frí á ári hverju. Hún er nýkomin heim frá Afríku og ræddi við blaðamann um þá einstöku ferð. 23.10.2024 20:01
„Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Maður er ennþá að ná sér niður eftir þetta,“ segir tónlistarmaðurinn Aron Can sem er nýkominn heim frá Kaupmannahöfn þar sem hann flutti nýju plötuna sína fyrir troðfullum sal. Blaðamaður tók púlsinn á þessari íslensku stórstjörnu. 23.10.2024 07:02
Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Hrekkjavökuhátíðin hefur fest sig í sessi hérlendis á undanförnum árum og bætist stöðugt í hóp þeirra sem kjósa að klæða sig í búning 31. október. Sumir vilja fara alla leið í herlegheitunum og ákvað Lífið á Vísi því að veita lesendum innblástur þegar það kemur að hrekkjavökubúningum. 22.10.2024 11:02
Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Glamúrinn var sannarlega í fyrirrúmi á laugardagskvöld þegar stórstjörnur heimsins komu saman í sínu fínasta pússi á galakvöldi Academy Museum í Los Angeles. 21.10.2024 20:00