Tveir greindust á Suðurlandi Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Báðir sem greindust voru í sóttkví. 17.5.2021 10:48
Banna fullyrðingar Landsbjargar um „umhverfisvæna flugelda“ Neytendastofa hefur lagt bann við fullyrðingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í auglýsingum sínum um sölu þeirra á „umhverfisvænni flugeldum“. Eru fullyrðingarnar taldar ósannaðar, veita rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar og til þess fallna að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. 17.5.2021 10:22
Handbendi brúðuleikhús hlaut Eyrarrósina Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlaut Eyrarrósina í ár, viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Þetta var í sautjánda sinn sem Eyrarrósin er afhent og í fyrsta sinn sem Eyrarrósin fellur í skaut verkefnis á Norðurlandi vestra. 17.5.2021 10:02
24 þúsund bólusettir í vikunni Um 24 þúsund einstaklingar verða bólusettir hér á landi í vikunni. Notast verður við öll fjögur bóluefnin – það er AstraZeneca, Pfizer, Moderna og Janssen. 17.5.2021 09:27
Hætta ekki að skima bólusetta ferðamenn eða þá með mótefni á næstu vikum Ekki stendur til að hætta á næstunni að skima ferðamenn á landamærum sem eru bólusettir eða eru með mótefni. Enn sé verið að greina bólusetta einstaklinga á landamærunum með veiruna. 17.5.2021 08:41
Handteknir eftir um tuttugu íkveikjur í Eskilstuna Lögregla í Svíþjóð handtók í nótt þrjá menn á þrítugsaldri sem grunaðir eru um íkveikjur á um tuttugu mismunandi stöðum í bænum Eskilstuna, um hundrað kílómetra vestur af Stokkhólmi. Sömuleiðis var ráðist á lögreglustöð í bænum. 17.5.2021 08:03
Hefja framkvæmdir við breikkun eftir strand Ever Given Framkvæmdir eru nú hafnar við breikkun á kafla Súesskurðarins. Ákveðið var að breikka hlutann vegna strands gámaflutningaskipsins Ever Given í mars síðastliðinn sem leiddi til gríðarlegra tafa á vöruflutningum í heiminum. 17.5.2021 07:46
Hæðin yfir Grænlandi heldur köldum loftstraumi að landinu Hæðin yfir Grænlandi ræður enn veðrinu hér á landi og heldur fremur köldum loftstraumi að landinu. Hitinn yfir daginn sunnanmegin á landinu getur rofið tíu stiga múrinn ef nægilega bjart verður en um landið norðanvert verða plúsgráðurnar mun færri. 17.5.2021 07:22
Vilhjálmur vill aftur á þing Vilhjálmur Bjarnason, varaþingmaður og fyrrverandi þingmaður, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar næsta haust. 14.5.2021 13:37
Kveðst hafa glatað 3,2 milljarða vinningsmiða í þvotti Kona í Bandaríkjunum sem fullyrðir að hún hafi keypt lottómiða með röð sem skilaði 26 milljóna dala vinningi, segir að hún hafi glatað miðanum eftir að hafa skilið hann eftir í buxnavasa og sett buxurnar í þvott. Vinningsupphæðin samsvarar um 3,2 milljörðum íslenskra króna. 14.5.2021 13:11