27 greindust innanlands í gær 27 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Átján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 67 prósent. Níu voru utan sóttkvíar, eða 33 prósent. 11.10.2021 10:51
Card, Angrist og Imbens fá Nóbelinn í hagfræði Sænska akademían tilkynnti í morgun að Kanadamaðurinn David Card annars vegar og hinn bandarísk-ísraelski Joshua D. Angrist og hollensk-bandaríski Guido W. Imbens hins vegar hafi hlotið hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans. 11.10.2021 10:07
Bein útsending: Fyrsti opni fundur undirbúningskjörbréfanefndar Fyrsti opni fundur undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa verður haldinn í dag og hefst hann klukkan 10:30. Fundarefnið er undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa og verður gestur fundarins Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. 11.10.2021 10:01
Dæmdir í þrjátíu ára fangelsi fyrir morð á hollenskum lögmanni Dómstóll í Hollandi hefur dæmt tvo menn í þrjátíu ára fangelsi vegna morðsins á lögmanninum Derk Wiersum í september 2019. Lögmaðurinn var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Buitenveldert í Amsterdam og vakti málið mikinn óhug meðal hollensku þjóðarinnar. 11.10.2021 09:54
Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Tilkynnt verður hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans til minningar um Alfred Nobel í ár á fréttamannafundi klukkan 9:45. 11.10.2021 09:16
Hætta rannsókn á máli Andrésar prins Lögregla í London hefur hætt rannsókn vegna ásakana á hendur hinum 61 árs Andrési prins vegna ásakana um kynferðisbrot. Andrés hefur neitað sök í málinu. 11.10.2021 09:14
Kallað út vegna reyks í íbúð: Heimiliskötturinn liggur undir grun Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna mikils reyks í íbúð í austurborg Reykjavíkur í nótt. Kviknað hafði í einhverju sem hafði verið lagt á eldavél sem heimiliskötturinn er grunaður um að hafa kveikt á. 11.10.2021 08:47
Mikill eldur á stærstu olíubirgðastöð Líbanons Gríðarmikill eldur braust út í bensóltanki á olíubirgðastöðinni Zahrani í Líbanon í morgun. 11.10.2021 08:32
Viðbúið að margir þurfi að finna bílrúðusköfurnar Víða er fremur kalt núna í morgunsárið og því viðbúið að margir þurfi að finna sköfurnar til að hreinsa ísingu á bílrúðum. Annars má reikna með hæglætisveðri í dag. 11.10.2021 07:05
Loks slakað á sóttvarnareglum eftir 107 daga gildistíma Ástralska borgin Sydney hefur nú loks slakað á hörðum sóttvarnareglum sem voru í gildi í heila 107 daga vegna kórónuveirufaraldursins. Á miðnætti stóð fólk í biðröðum fyrir utan verslanir og veitingastaði sem opnuðu loks dyr sínar fyrir gestum. 11.10.2021 06:45