Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Síðdegis í dag voru björgunarsveitir á Norðausturlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kallaðar út vegna ferðamanns sem hafði hrasað við göngu við Hafragilsfoss. Á nánast sama tíma barst tilkynning um annan ferðamann sem hafði ökklabrotnað í Hrútagili í Skaftafelli og var þyrlunni fyrst beint þangað. 10.8.2026 22:16
,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Formaður Sjálfstæðisflokksins sakar forsætisráðherra um að vera ósamkvæm sjálfri sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Segir hún fyrirhugaða hlustunarfundi forsætisráðherrans um landið ekkert annað en kosningaherferð. 10.8.2026 21:09
„Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Metþátttaka var í Gleðigöngunni sem var gengin um götur miðborgar Reykjavíkur á laugardaginn. Formaður Hinsegin daga segir ánægjulegt að sjá aukinn fjölda taka þátt í baráttunni en að samfélagið þurfi að standa saman gegn aðkasti í garð hinsegin fólks. 10.8.2026 19:52
Tala látinna komin yfir hundrað Enn er verið að meta manntjón vegna jarðskjálfta af stærðinni 7,4 sem skók vestanverða Kólumbíu í dag. Tala látinna er komin yfir hundrað að sögn forseta landsins. 10.8.2026 18:53
Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Hún hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum. 10.8.2026 17:44
Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Lögreglan á Suðurlandi reynir nú að hafa uppi á breskum hjónum sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl á bílastæði við Eldgjá í Skaftártunguafrétti á laugardaginn. Lögreglu barst tilkynning um málið í gær og reynir nú að rekja ferðir fólksins. 10.8.2026 17:05
Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Jarðskjálfti af stærðinni 7,4 skók vestanverða Kólumbíu og nágrannaríkið Ekvador í dag. Minnst tuttugu og sex eru sagðir hafa látist og mikið tjón orðið á byggingum við upptök jarðskjálftans. 10.8.2026 13:50
Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Mikill viðbúnaður lögreglu var við íbúðarhús sem er í verslunarkjarna við Gnoðarvog í Reykjavík um fimmleytið í dag, en þegar mest var voru minnst sex lögreglubílar á vettvangi. Þá voru að minnsta kosti tveir menn leiddir út í járnum. 9.8.2026 17:32
Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Einn var fluttur á slysadeild vegna alvarlegrar líkamsárásar í heimahúsi í Kópavogi í dag. 9.8.2026 16:43
Rósa Björk segir já Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, hyggst segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í lok ágúst. Í stefnu Vinstri grænna er því haldið fram að hagsmunum landsmanna sé best komið utan Evrópusambandsins en rúmlega áttatíu prósent kjósenda flokksins hyggjast þó segja já. Hún segist finna fyrir viðhorfsbreytingu innan flokksins. 9.8.2026 16:06