Dagskráin í dag: Enski, þýski og NFL eiga sviðið Það er nóg um að vera á sportrásum Sýnar í dag líkt og áður. Enski boltinn í fótbolta heldur áfram að rúlla sem og sá þýski og þá er úrslitakeppnin tekin við í NFL deildinni. 18.1.2026 06:02
Alfreð tekur á sig sökina: Gagnrýndur óbeint af leikmanni Juri Knorr, leikstjórnandi þýska landsliðsins, virtist gagnrýna landsliðsþjálfarann Alfreð Gíslason óbeint í viðtali eftir svekkjandi tap gegn Serbum á EM í kvöld þar sem Alfreð gerði sig sekan um slæm mistök. 17.1.2026 23:28
Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Íslenski landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson er spenntur fyrir komandi tímum í Þýskalandi þar sem að hann hefur samið við lið Hannover. Hann sætti sig ekki við bekkjarsetu á Englandi og er spenntur fyrir öðruvísi hlutverki í Þýskalandi sem hann kannast þó einnig vel við. 17.1.2026 22:45
Fá martraðir um Tryggva eftir leik kvöldsins Tryggvi Snær Hlinason, átti virkilega flottan leik þegar að lið hans Bilbao Basket hafði betur gegn La Laguna Tenerife í ACB deildinni á Spáni, lokatölur 95-78 sigur Bilbao. 17.1.2026 21:54
Martin framlagshæstur í sigri Alba Berlin Martin Hermannsson var í eldlínunni með Alba Berlin er liðið hafði betur gegn Rasta Vechta í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, lokatölur 93-85 sigur Alba Berlin. 17.1.2026 21:37
Norðmenn áfram í milliriðla Norska landsliðið er komið áfram í milliriðla á EM í handbolta og mun spila úrslitaleik við ríkjandi Evrópumeistara Frakka um toppsæti C-riðils í næstu umferð. Noregur hafði betur gegn Tékklandi í kvöld, 29-25 17.1.2026 21:27
Stór mistök Alfreðs reyndust Þjóðverjum dýrkeypt Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta þurftu að sætta sig við svekkjandi tap gegn Serbum á EM í handbolta í kvöld. Á ögurstundu gerði Alfreð mistök sem reyndust Þjóðverjum dýrkeypt. 30-27 urðu lokatölurnar, þriggja marka sigur Serbíu. 17.1.2026 21:15
Átta íslensk mörk í svekkjandi tapi Átta íslensk mörk litu dagsins ljós þegar að Íslendingalið Blomberg Lippe laut í lægra haldi gegn Esztergomi í Evrópudeildinni í handbolta. Lokatölur 33-32 sigur Esztergomi. 17.1.2026 20:52
Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Oliver Glasner, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Crystal Palace er allt annað en sáttur við forráðamenn félagsins og lét óánægju sína í ljós í viðtali eftir tap gegn Sunderland í dag. 17.1.2026 19:50
Elvar öflugur í mikilvægum sigri Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson, átti öflugan leik fyrir Anwil Wloclawek þegar að liðið hafði betur gegn Górnik Walbrzych í pólsku deildinni í dag. Loktaölur 86-61 sigur Anwil. 17.1.2026 18:47