Bíl Unnar Aspar stolið fyrir utan Þjóðleikhúsið Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir varð fyrir óláni í gær þegar bíl hennar var stolið fyrir utan vinnustað hennar Þjóðleikhúsið. 11.9.2021 18:34
Gat ekki hugsað sér að slást við konuna sína Karlmaður segir ofbeldi gagnvart körlum af hendi kvenna vera töluvert algengara en fólk gerir sér grein fyrir. Hann deilir sögu af ofbeldissambandi sem hann var í með fyrrverandi konu sinni. Karlmaðurinn sagði sögu sína í Bítinu á Bylgjunni í morgun undir nafnleynd en hann segist ekki vilja persónugera árásina. 7.9.2021 09:01
Cardi B og Offset eignuðust annað barn Rapphjónin Cardi B og Offset eignuðust sitt annað barn á laugardag ef marka má Instagramfærslu Cardi. 6.9.2021 22:58
Vilja að ráðherra skoði stöðu vararíkissaksóknara Aðgerðasinnahópurinn Öfgar segir í ákalli til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að innan dómkerfisins finnist menn sem ítrekað hafi tekið stöðu gegn þolendum kynbundins ofbeldis. 6.9.2021 22:11
Mikill viðbúnaður þegar bifreið rann í sjóinn í Nauthólsvík Tilkynnt var um bifreið sem runnið hafði í sjóinn í Nauthólsvík rétt í þessu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út ásamt almennri lögreglu og sjúkraliði. 6.9.2021 19:46
Kári Stefánsson vill afnema allar fjöldatakmarkanir Kári Stefánsson segir málum nú vera svo háttað að afnema eigi allar fjöldatakmarkanir enda séu núgildandi takmarkanir illverjanlegar. 6.9.2021 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld segjum við frá því að tveir ráðherrar ríkisstjórnar Íslands telja tíma til kominn að létta á aðgerðum innanlands. Sóttvarnalæknir er hins vegar ekki á sama máli. Faraldurinn er á hægri niðurleið og álagið á Landspítalann ekki í nánd því eins mikið og þegar verst lét í þessari bylgju. 6.9.2021 18:10
Segir brandara frambjóðanda Flokks fólksins um Pólverja smekklausan með öllu Brandari sem Eyjólfur Ármannsson, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, lét flakka í Oddvitaáskorun Vísis hefur farið fyrir brjóstið á netverjum, sem segja brandarann vera dæmi um hatursorðræðu í garð Pólverja. Formaður samtaka Pólverja á Íslandi segir brandarann vera smekklausan með öllu, ummælin dæmi sig sjálf. Formaður Flokks fólksins hafði ekki heyrt af málinu en trúir því ekki að brandarinn hafi verið illa meintur hjá oddvitanum. 4.9.2021 17:39
Bleiki fíllinn og Öfgar þakka ÍR og Haukum sýndan stuðning við þolendur Bleiki fíllinn forvarnarhópur og Öfgar þakka knattspyrnuliðum ÍR og Hauka fyrir að sýna þolendum kynferðisofbeldi stuðning þegar liðin gengu inn á völlinn fyrir leik þeirra sem er nú í gangi. 4.9.2021 17:23
Segir valdarán í Samfylkingunni hafa skorið undan lýðræðinu Birgir Dýrfjörð, stjórnarmaður í flokksstjórn og stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir hreinsanir á lista flokksins eftir síðustu áramót hafa valdið mestu um fylgistap Samfylkingarinnar í Reykjavík-Suður. 4.9.2021 14:22