

Andri Eysteinsson
Nýjustu greinar eftir höfund

Þrír ákærðir fyrir morðið á Ahmaud Arbery
Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir morð vegna dauða Ahmaud Arbery sem var skotinn til bana þegar hann fór út að hlaupa í Georgíu í Bandaríkjunum í febrúar.

Dáist að staðfestu Bandaríkjaforseta
„Ég dáist að því að hann hefur staðið við kosningaloforðin sín,“ sagði Guðmundur Franklín Jónsson, forsetaframbjóðandi spurður út í meinta aðdáun sína á Bandaríkjaforseta, Donald Trump í umræðuþætti Ríkisútvarpsins vegna forsetakosninganna sem fram fara á laugardaginn.

Ljósmæðrastrætóinn lagði af stað frá Spönginni
Um götur bæjarins ekur nú strætisvagn skreyttur teikningum sem ætlað er að heiðra ljósmæður og þakka þeim fyrir sín störf.

Vonast eftir því að skimun á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst
Forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals útsýnar segist vonast til þess að skimunum vegna kórónuveirunnar á Keflavíkurflugvelli verði hætt sem fyrst. Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofunnar ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Ólíklegt er að Bandaríkjamenn megi koma til Íslands þegar ytri landamæri Schengen verða opnuð um mánaðarmótin að sögn dómsmálaráðherra. Fjallað verður um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö og rýnt í stöðuna hjá Icelandair og í kjaradeilu flugfreyja.

Ísland lokið aðgerðum til þess að komast af gráa listanum
Ísland hefur lokið aðgerðum sínum sem farið var í vegna flokkunar Íslands á gráa lista FATF yfir ríki sem hafa ónægar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Óvenjuleg lausn undir óvenjulegum kringumstæðum
Fyrirhuguðu verkfalli hjúkrunarfræðinga sem átti að hefjast í fyrramálið var afstýrt seint í kvöld þegar samkomulag náðist um miðlunartillögu sem Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari lagði fram til samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og ríkisins.

Ekki verður af verkfalli hjúkrunarfræðinga
Fundi samninganefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og ríkisins lauk í Karphúsinu á tólfta tímanum í kvöld. Fyrirhuguðu verkfalli sem átti að hefjast klukkan 08:00 í fyrramálið hefur verið afstýrt

Nýtt met slegið í faraldrinum: Aldrei fleiri smit greinst á sólarhring
Í dag var met slegið í fjöldi nýgreindra kórónuveirusmita í heiminum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO.

Eins tilbúin og hægt er fyrir harðari skjálfta
Ekkert lát er á jarðskjálftahrinunni sem hófst norðan við Gjögurtá á föstudag. Stærstu skjálftarnir hafa fundist í byggð allt frá Húsavík til Ísafjarðar, á Akranesi og á höfuðborgarsvæðinu.