Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Davide Ancelotti hefur tekið til starfa sem knattspyrnustjóri Lille í frönsku úrvalsdeildinni. Hann verður í fjarvinnu fyrst um sinn, meðan hann aðstoðar föður sinn Carlo Ancelotti með brasilíska landsliðið á HM. 1.6.2026 11:30
Freyr rekinn frá Brann Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Freyr Alexandersson lokið störfum hjá Brann. 1.6.2026 10:43
Doncic flytur félag til Rómar Luka Doncic hefur fest kaup á eignarhlut í ítalska körfuboltafélaginu Cremona. Liðið spilar í úrvalsdeildinni og mun nú færa sig um set til Rómar. 29.5.2026 17:00
Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar José Mourinho hefur skrifað undir samning og verður kynntur sem nýr knattspyrnustjóri Real Madrid ef Florentino Perez vinnur forsetakosningar félagsins þann 7. júní. 29.5.2026 15:00
Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Ali Abdi þurfti að yfirgefa herbúðir franska liðsins OGC Nice nokkrum dögum fyrir úrslitaleik umspilsins gegn Saint-Étienne upp á sæti í frönsku úrvalsdeildinni. Félagið hefur komið honum til varna og sagt stuðningsmönnum að hætta öllum hótunum. 29.5.2026 14:00
Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Golfsumarið er hafið og íþróttin á hámarki vinsælda sinna á Íslandi. Í upphafi sumars hafa kylfingar á Leirdalsvelli Kópavogs og Garðabæjar verið alveg einstaklega hittnir. 29.5.2026 12:31
Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu þurftu tvisvar að stöðva leik gegn Katar í gærkvöldi til að hreinsa tennisbolta af vellinum. Áhorfendur voru að mótmæla fyrirhuguðum leik Írlands við Ísrael. 29.5.2026 08:45
Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Landsliðshópur ríkjandi heimsmeistaraliðs Argentínu fyrir HM í fótbolta hefur verið opinberaður. 29.5.2026 08:30
Hjalti stýrir Skagamönnum Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari karlaliðs ÍA í körfubolta og mun stýra liðinu í 1. deildinni á næsta tímabili. 29.5.2026 07:41
Spurs knúðu fram oddaleik San Antonio Spurs knúðu fram oddaleik í vesturdeild NBA með 118-91 sigri gegn Oklahoma City Thunder í nótt. 29.5.2026 07:24