Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna. 16.6.2026 16:07
Skoða hvaða bílastæði megi aftur taka í notkun Reykjavíkurborg hyggst endurskoða gjaldskyldutíma bílastæða í miðborginni, einfalda rafræna greiðslumáta og fara yfir reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þá verður einnig skoðaða hvort taka megi einhver stæði aftur í notkun. 16.6.2026 15:29
Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu leita að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir. Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar því að ríkið hyggist hafa stöðina fjarri íbúabyggð en hann vill helst hafa hana innan flugvallarsvæðisins í Keflavík. 16.6.2026 14:58
Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur sent erindi til héraðssaksóknara vegna framgöngu sérsveitarmanns sem er sakaður um að hafa lagt hné á háls manns við handtöku fyrir utan skemmtistað á Akureyri. 16.6.2026 12:59
Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, er komin úr átján daga veikindaleyfi. Hún segist hafa fengið flensuna. 16.6.2026 10:14
Minniháttar röskun gæti haft alvarlegar afleiðingar Hætta vegna dróna á Íslandi er sögð lítil samkvæmt nýrri skýrslu frá íslenskrri hugveitu. Þar er ljósi varpað á „gloppur“ í drónavörnum Íslands. Vegna landfræðilegrar einangrunar landsins geti jafnvel minniháttar truflanir haft alvarlegar þjóðhagslegar afleiðingar. 15.6.2026 16:46
Skar kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst Matvælastofnun kærði í maí nautgripabónda til lögreglu fyrir barsmíðar á kúm og kvígum. Einnig var sauðfjárbóndi sektaður fyrir að skera tvær kindur á háls án þess að svipta þær meðvitund fyrst eins og skylt er. 15.6.2026 15:51
Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þingmenn samþykktu í dag frumvarp um að að hækka laun kjörinna fulltrúa og embættismanna um 3,5 prósent í júlí, frekar en 9,7 prósenta eins og til stóð. 15.6.2026 14:10
Þetta fær Hildur í laun Heildarlaun Hildar Björnsdóttur borgarstjóra eru rétt tæpar þrjár milljónir króna á mánuði samkvæmt ráðningarsamningi. Eins og áður hefur borgarstjóri embættisbifreið til umráða og á rétt á biðlaunum til sex mánaða. 15.6.2026 13:24
Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu Almenn bilun í ljósleiðarakerfinu hefur valdið vandræðum hjá íslenskum vefsíðum og netkerfum. 15.6.2026 12:51