Fréttamaður

Agnar Már Másson

Agnar Már er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum

Tveir ökumenn á höfuðborgarsvæðinu voru í dag kærðir fyrir að aka bifreið á nagladekkjum. Samkvæmt lögum er óheimilt að aka á nagladekkjum frá og með 15. apríl hvert ár innanbæjar. 

Harður á­rekstur á Reykja­nes­braut

Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka eftir að tveggja bíla árekstur varð á Reykjanesbraut á fimmta tímanum eftir hádegi í dag. Betur fór en á horfðist að sögn slökkviliðs. 

Fjár­mála­stjórinn verður sveitar­stjóri

Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri Norðurþings, verður ráðinn sveitarstjóri sveitarfélagsins í næstu viku. Hann tekur við af Katrínu Sigurjónsdóttur, sem var einnig fagráðin. Fjögurra flokka meirihluti var myndaður í sveitarfélaginu eftir síðustu kosningar.

Öl­gerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Sérsveitaraðgerð á Akur­eyri

Lögreglan á Norðurlandi eystra og sérsveit Ríkislögreglustjóra réðust í aðgerð á Akureyri í kvöld. Ungur maður er sagður hafa verið handtekinn.

Segir sjaldan hafa verið auð­veldara að vera fyrsti kaupandi

Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr.

Vill fá Ís­land inn og tólf í við­bót

Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.

Keili form­lega slitið

Félaginu Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs ehf. hefur formlega verið slitið en námsbrautir skólans hafa flestar verið færðar undir hatta annarra námsstofnana. Háskólabrú Keilis heldur áfram undir Háskóla Íslands.

Vilja banna rúss­neska túr­ista

Ísland er sagt vera meðal þeirra ellefu Evrópuríkja sem krefjast þess að Evrópusambandsríki hætti að veita rússneskum ferðamönnum vegabréfsáritanir. Ráðherrar landanna munu hafa sent framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem þeir segji það óboðlegt að rússneskir ferðamenn fái að sóla sig á evrópskum ströndum á meðan sprengjur dynja á úkraínskum borgum.

Sjá meira