Laugavegurinn áfram göngugata í vetur Tillaga að fyrsta áfanga að nýju deiliskipulagi fyrir Laugaveginn sem göngugötu, var samþykkt í auglýsingu í skipulags- og samgönguráði og fer hún fyrir borgarráð á morgun, 26. september. 25.9.2019 16:35
Hvetja háskólanema til að mæta með eigin hnífapör í skólann Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur nemendur í skólanum, sem eru á þrettánda þúsund, til þess að mæta með eigin hnífapör í skólann. 25.9.2019 16:21
Samþykkt að lækka hámarkshraða í Laugardalnum Samgöngu- og skipulagsráð samþykkti á fundi sínum í dag að lækka hámarkshraða á Reykjavegi og Sundlaugarvegi. Katrín Atladóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og íbúi í hverfinu, greinir frá þessu í Facebook-hópnum Laugarneshverfi. 25.9.2019 15:47
Helstu hjólastígarnir fá nöfn Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að lykilstígar í hjólastígakerfi borgarinnar fá nöfn. Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar, greinir frá þessu. 25.9.2019 15:38
Töldu ekki tilefni til gæsluvarðhalds yfir manninum í Austurbæjarskóla Ekki þótti tilefni til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa farið inn í Austurbæjarskóla á miðjum skóladegi í upphafi þessa mánaðar, platað stúlku í fimmta bekk upp á aðra hæð skólans, þar sem hann þuklaði á henni og hafði uppi kynferðislega tilburði. 25.9.2019 11:44
Dæmdur barnaníðingur ákærður í keimlíku máli Þorsteinn Halldórsson, karlmaður á sextugsaldri, sætir í annað skiptið á innan við tveimur árum ákæru fyrir kynferðisbrot gegn barni. 24.9.2019 22:42
Ökuníðingurinn veittist að lögreglu eftir að hafa valdið stórhættu á Vesturlandsvegi Ökuníðingurinn sem stöðvaður var með naglamottu í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í dag hafði mælst á rúmlega 200 km/klst hraða á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng. 24.9.2019 15:28
iPhone sem féll úr flugvél yfir Skaftárdal fannst í ágætu ástandi ári síðar Haukur Snorrason flugmaður var á flugi í vél sinni TF ULF yfir Skaftárdal í ágúst í fyrra þegar hann missti síma sinn út úr flugvélinni. 24.9.2019 15:01
Rabbar barinn á Hlemmi kveður Skarð verður höggið í matarflóru borgarbúa á föstudaginn, ekki síst hjá veganfólki, þegar veitingastaðnum Rabbar barinn á Hlemmi verður lokað. Eigandi staðarins segir ástæðuna einfalda. Viðskiptavinir hafi ekki verið nægjanlega margir. 24.9.2019 14:26
För ökuníðings stöðvuð í Mosfellsbæ Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu í Mosfellsbæ á tólfta tímanum í dag þar sem von var á ökumanni ofan af Akranesi sem ók bíl sínum langt umfram löglegan hámarkshraða. 24.9.2019 12:58