Vefblaðamenn leggja niður störf frá 10 til 18 Klukkan tíu leggja fréttamenn, ljósmyndarar og myndatökumenn á vefmiðlum niður störf í átta tíma. Um er að ræða aðra aðgerðina í boðuðum verkfallsaðgerðum félaga í Blaðamannafélagi Íslands á fjórum fjölmiðlum. Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, RÚV og Vísi. 15.11.2019 09:16
Bein útsending: Borgarstjóri kynnir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis Opinn kynningarfundur borgarstjóra um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík verður haldinn í dag klukkan níu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Reiknað er með því að fundurinn standi í tvær klukkustundir. 15.11.2019 08:15
Strákar vilji svör en stelpurnar meiri tengsl og kynni Sigrún Ósk Kristjánsdóttir segist merkja mun á því hvernig stelpur og strákar nálgist með ólíkum hætti leit að uppruna sínum. Þetta kom fram í fjórða þætti Á bak við tjöldin á Vísi þar sem þriðja þáttaröðin af Leitinni að upprunanum var gerð upp. 14.11.2019 16:30
Björgólfur Jóhannsson í leyfi hjá Íslandsstofu Björgólfur Jóhannsson hefur tilkynnt að hann muni tímabundið láta af störfum sem stjórnarformaður og stjórnarmaður hjá Íslandsstofu. 14.11.2019 16:15
Gefa björgun bátsins upp á bátinn Rannsóknardeild lögreglunnar á Vestfjörðum hefur í dag tekið skýrslur af fjórum skipverjum á fiskibátnum Einari Guðnasyni sem strandaði við Gölt, á utanverðum Súgandafirði, í gærkvöldi. 14.11.2019 15:40
Vikið úr metoo-hópi kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er ekki lengur meðlimur í #metoo-hópi kvenna í sviðslistum og kvikmyndagerð. 14.11.2019 15:00
Segir uppsagnir viðbrögð við stríðsástandi hjá Íslandspósti á Selfossi Forstjóri Íslandspósts segir ástandið hafa verið afar erfitt á starfstöð póstins á Selfossi undanfarin tvö ár. Svo erfitt að nýlega hafi þurft að grípa til uppsagna. Eineltisásakanir hafi gengið á víxl en búið sé að gjaldfella eineltishugtakið. 14.11.2019 13:59
Landsmenn geta skoðað sektirnar sínar á netinu Lögreglan hefur tekið í notkun nýja tækni og hér eftir verður hægt að nálgast upplýsingar um sektir í pósthólfi á island.is sem er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. 14.11.2019 11:42
Bein útsending frá Alþingi: Þingmenn ræða spillingu í skugga Samherjaskjalanna Málefni Samherja verða fyrirferðamikil á Alþingi í dag. 14.11.2019 10:26
Bíða yfirheyrslu eftir vopnað rán í Iceland Karl og kona um tvítugt voru handtekin í morgun eftir vopnað rán í verslun Iceland í Hafnarfirði. Mbl.is greindi fyrst frá. Fólkið var vopnað hníf og ögraði starfsmanni verslunarinnar. 14.11.2019 10:19