Færð á vegum og veður komin á sama Íslandskort Í fyrsta sinn á Íslandi geta innlendir og erlendir ferðalangar séð allar upplýsingar sem tengjast færð og veðri á einu íslandskorti á vef Safetravel. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála tók kortið formlega í notkun í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í gær. 28.11.2019 10:07
Tveir af þremur dæmdir fyrir að nauðga unglingsstúlku Tveir karlmenn á fertugsaldri hafa verið dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku á sautjánda ári í húsnæði í Reykjavík í febrúar 2017. Þá þurfa þeir hvor fyrir sig að greiða stúlkunni 1,3 milljónir króna í miskabætur. 28.11.2019 07:00
Samherjamálið rifjaði upp fyrir Andrési hvaðan Sjálfstæðisflokkurinn kemur Andrés Ingi Jónsson segir að Samherjamálið hafi ekki haft úrslitaáhrif á ákvörðun hans að segja sig úr þingflokki Vinstri grænna og sitja á þingi sem þingmaður utan þingflokka. Andrés Ingi tilkynnti um ákvörðun sína síðdegis. 27.11.2019 17:00
Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2019 Landsvirkjun hlýtur Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2019 en þau voru veitt á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Hátíðasal Háskóla Íslands í morgun. 27.11.2019 16:37
Situr uppi með rándýrt læknisvottorð og 600 þúsund króna reikning Kona nokkur sem lenti í bílslysi árið 2015 þarf að greiða Sjóvá og ökumanni bílsins sem varð valdur að slysinu 600 þúsund króna málskostnað. Konan stefndi tryggingarfyrirtækinu og ökumanninum til greiðslu læknisvottorðs sem hún sótti til að innheimta skaðabætur vegna slyssins. 27.11.2019 13:25
Lækka leiguverð til að halda í leigjendur Innkoma Bjargs íbúðafélags á leigumarkaðinn hefur strax haft áhrif á leiguverð á markaðnum. Þannig hafa leigusalar á almennum markaði lækkað leiguverð til þess að halda í leigjendur, frekar en að missa þá. 27.11.2019 12:20
Bein útsending: Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn? Getur sýndarheimur haft meiri merkingu en raunveruleikinn? Þannig hljóðar yfirskriftin á fyrirlestri sem Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, heldur í Háskólanum í Reykjavík í dag. 27.11.2019 11:15
Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur. 27.11.2019 11:06
Bein útsending: Þjóð undir þaki - jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði Húsnæðisþing Íbúðalánasjóðs á Hilton Reykjavík Nordica hefst klukkan 10 í dag og lýkur klukkan 16:30. Yfirskrift þingsins í ár er Þjóð undir þaki - jafnrétti og jafnvægi á húsnæðismarkaði. 27.11.2019 10:02
Tuttugu mánuðir í fangelsi fyrir stórfelldan fíkniefnainnflutning Pólskur karlmaður hefur verið dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og tolla-, lyfsölu- og lyfjalagabrot. Hann var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku fyrir innflutning á 900 millilítrum af amfetamínbasa, 95 steratengdum töflum og 120 millilítra af steravökva. 25.11.2019 16:46