Ætla að tryggja að einn af hverjum tíu sé nýliði Innan við sólarhringur er í að hulunni verði svipt af því hvaða 251 listamaður fékk náð fyrir augum úthlutunarnefnda úr þeim átta sjóðum sem veita listamannalaun. Listamönnunum sjálfum hefur verið tilkynnt um niðurstöðuna. Þó nokkrir eru með böggum hildar og ganga slyppir og snauðir á braut. Lítið heyrist í fámennari hópnum, þeim sem anda léttar og fengu þriggja til tólf mánaða blessun á umsókn sinni. 4.12.2024 16:03
Flatur strúktúr gekk ekki upp María Sigríður Halldórsdóttir hefur tekið formennsku WIFT á Íslandi eftir að stjórnin starfaði með flötum strúktúr án formanns í eitt ár. Fyrirkomulagið þótti ekki ganga upp. 4.12.2024 13:57
Ásgeir Þór og Theodór grípa boltana hans Gríms Starf Gríms Grímssonar yfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður auglýst til umsóknar. Ráðið verður í starfið tímabundið til eins árs. Á meðan umsóknarferlinu stendur munu tveir reynsluboltar hjá lögreglunni fylla í skarð Gríms. 4.12.2024 11:12
Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Hitabreytingar voru með mesta móti á Austfjörðum í gær. Hitinn fór sem dæmi úr -23,6 gráðum í Möðrudal á Fjöllum í gærmorgun yfir í -0,4 gráður klukkan níu í morgun. 3.12.2024 16:58
Bæjarstjóraskipti á áætlun í Hafnarfirði Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði og nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, lætur af störfum sem bæjarstjóri um áramótin eins og til stóð. Samkvæmt málefnasamningi við Framsóknarflokksins verður Valdimar Víðisson oddviti flokksins og forseti bæjarráðs bæjarstjóri síðasta eina og hálfa ár kjörtímabilsins. 3.12.2024 16:01
Gleðitár á hvarmi Fúsa við verðlaunaafhendingu Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir fengu Hvatningarverðlaun ÖBÍ réttindasamtaka sem veitt voru í morgun. Verðlaunin voru bæði veitt fyrir tímamótaverk í íslenskum atvinnuleikhúsum. Verðlaunahafi felldi tár og ljóð var ort í tilefni dagsins. 3.12.2024 14:49
Hámarksbið eftir barnabótum verður fjórir mánuðir Barnabætur verða frá og með næsta ári einnig fyrirframgreiddar á fæðingarári barns í samræmi við nýja reglugerð fjármála- og efnahagsráðherra sem tekur gildi 1. janúar 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðuneytisins. 3.12.2024 13:54
Blandar sér í baráttuna um rektorinn Kolbrún Þ. Pálsdóttir sviðsforseti og dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur gefið kost á sér til embættis rektors Háskóla Íslands. Hún greinir frá framboði sínu á Facebook. 3.12.2024 13:41
Grunaður morðingi áfram bak við lás og slá Norðfirðingur á fimmtugsaldri sem grunaður er um að hafa myrt hjón á áttræðisaldri á heimili þeirra í Neskaupstað í ágúst hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 20. desember. Ganga í málinu er beðið en rannsókn hefur teygt sig vel yfir tólf vikna viðmið um hámarkslengd í gæsluvarðhaldi án útgefinnar ákæru. 3.12.2024 10:08
Ástand á Reykjanesbrautinni Viðbragðsaðilar eru á fjórum vettvöngum á Reykjanesbraut þar sem árekstrar eða óhöpp hafa orðið. Ekki er vitað um slys á fólki. 2.12.2024 15:58