Ingó í stærra hlutverki en venjulega á Þjóðhátíð Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, mun stýra Brekkusöngnum í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðhátíð. 2.7.2021 08:08
„Ég ber ábyrgð á því sem er að gerast þarna“ „Í fyrsta lagi er ég gjörsamlega miður mín, og ég skil ekkert í þessu. Við fylgjum þeirri reglu að það er bara lokað í vindi. Hann er ekki blásinn upp í vindi,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar. 1.7.2021 15:51
Fjöldi barna í risastórum hoppukastala sem tókst á loft á Akureyri Fjöldi barna var í risastórum hoppukastala sem tókst á loft við Skautahöllina við Naustaveg á Akureyri á þriðja tímanum í dag. Sex voru flutt til skoðunar á sjúkrahús á Akureyri og eitt með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur. 1.7.2021 14:28
Matsatriði hverju sinni hvort bólusettir þurfi í sóttkví Fólk sem hefur verið bólusett fyrir Covid-19 skal panta tíma í sýnatöku sem fyrst ef það fær einkenni sem minna á Covid-19. Hann á að halda sig heima og ekki fara í skóla eða vinnu. Bólusettir þurfa ekki að vera í sóttkví vegna minniháttar útsetningar. 1.7.2021 11:33
Tveir greindust með Covid-19 innanlands Tveir greindust með kórónuveiruna frá mánudegi til miðvikudags. Annar var utan sóttkvíar. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir að búið sé að ná utan um smitið sem var utan sóttkvíar. 1.7.2021 10:51
Milljarðar til SOS Barnaþorpa sem beina sjónum sínum að Ásbrú Í dag hefst formlega samstarf SOS Barnaþorpanna og evrópska íbúðaleigufyrirtækisins Heimstaden sem ætlað er að tryggja örugg heimili og traustan grunn fyrir barnafjölskyldur um allan heim. Samstarfið gerir SOS meðal annars kleift að styrkja verkefni í þágu barna á Íslandi í fyrsta sinn. Ærslabelgur er á leið á Ásbrú í Reykjanesbæ auk þess sem stutt verður við sérkennslu á leikskóla á svæðinu. 1.7.2021 10:43
Lögreglan þögul sem gröfin: Byssumaðurinn sá sem stakk mann með hníf á Sushi Social Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill engar upplýsingar veita um stöðuna á rannsókn á máli karlmanns sem handtekinn var með hlaðna skammbyssu við Kaffihús Samhjálpar í hádeginu á mánudag. 1.7.2021 06:01
Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Verne Global Landsvirkjun og Verne Global hf. tilkynntu í dag undirritun nýs raforkusamnings. Um er að ræða grænan raforkusamning sem gildir til 2030, en í honum er samið um upprunaábyrgðir til staðfestingar á því að öll raforka sem seld er til gagnavers Verne Global á Íslandi er einungis framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. 30.6.2021 14:35
Nóg hafi verið að þiggja afmælisboð Björgólfs til að komast á svartan lista Halldór Kristmannsson segir að Róbert Wessman hafi beitt undirmenn sína þrýstingi árum saman til að koma höggi á hóp athafnamanna í íslensku viðskiptalífi. Halldór telur upp fjölda fólks sem hann segir Róbert hafa horn í síðu. Meðal annars Björgólfsfeðga, Birgi Bieltvedt og Heiðar Guðjónsson. Þá hafi Róbert haft frumkvæði að málsókn á hendur Björgólfi yngri í nafni hluthafa bankans. 30.6.2021 13:13
Seldu fyrir 2,9 milljarða í Origo Hvalur hf. og tengt félög seldu í morgun allan hlut sinn í upplýsingatæknifyrirtækinu Origo fyrir tæplega 2,9 milljarða króna. Félögin seldu um sextíu milljónir hluta sem jafngildir 13,8 prósenta hlut í Origo. Hvalur átti 11,57 prósent í Origo. 30.6.2021 11:27