Segir ekki rétt að Ísland tækli sóttkví allt öðruvísi en nágrannarnir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gerir rangfærslur um framkvæmd sóttkvíar í nálægum löndum vegna COVID-19 að umtalsefni í pistli sínum á Covid.is í dag. Hann segir Norðurlandaþjóðirnar útfæra sóttkví á ólíkan máta og alls ekki þannig að framkvæmd Íslands sé á skjön við hin Norðurlöndin. 19.11.2021 16:26
Sjö ára fangelsi fyrir hrottalegt ofbeldi gegn sambýliskonu Karlmaður búsettur hér á landi hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðgun og brot í nánu sambandi. Landsréttur kvað upp dóm sinn í dag og þyngdi dóm yfir manninum úr héraði um eitt ár. 19.11.2021 15:38
Deila Atla Rafns og Persónuverndar komin á byrjunarreit Landsréttur vísaði í dag frá máli Atla Rafns Sigurðarsonar gegn Persónuvernd. Málskostnaður fyrir báðum dómstigum fellur niður. Atli Rafn hafði áður haft betur í baráttu sinni við Persónuvernd fyrir héraðsdómi en Persónuvernd áfrýjaði dómnum. 19.11.2021 14:31
Stærsta árlega herferð Amnesty farin af stað Í gær, fimmtudaginn 18. nóvember, ýtti Íslandsdeild Amnesty International úr vör Þitt nafn bjargar lífi, stærstu árlegu mannréttindaherferð í heimi. Markmiðið er að safna undirskriftum í þágu þolenda mannréttindabrota og skora á stjórnvöld víða um heim að láta tafarlaust af brotunum. 19.11.2021 06:09
Greind með sama banvæna sjúkdóm og pabbi hennar Kvikmyndagerðarkonan Helga Rakel Rafnsdóttir greindist með MND sjúkdóminn fyrr á þessu ári. Faðir hennar, trommarinn Rafn Ragnar Jónsson, lést úr sama sjúkdómi árið 2004 þá 49 ára gamall. Þetta kemur fram í þættinum Okkar á milli sem sýndur verður á RÚV í kvöld. 18.11.2021 16:36
Reykræstu í húsi Nings á Suðurlandsbraut Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út að Suðurlandsbraut 6 í Reykjavík upp úr klukkan þrjú í dag. 18.11.2021 15:30
Manuela sýknuð þriðja sinni og nú í Hæstarétti Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm í máli ákæruvaldsins á hendur Manuelu Ósk Harðardóttur sem gefið var að sök að hafa svipt barnsfeður sína tvo valdi og umsjón með börnum þeirra. Kom meðal annars fram í dómi Hæstaréttar að réttur foreldris með lögheimili barnanna væri ríkari til að taka ákvarðanir um málefni þess. 18.11.2021 14:44
Bilun í NATO-strengnum og unnið að viðgerð Ljósleiðarastrengur Mílu á milli Hegraness og Hóla í Hjaltadal fór í sundur eftir hádegi í dag. Fram kemur í tilkynningu á vef Mílu að bilanagreining standi yfir. Samstarfsaðili Mílu er á leiðinni á staðinn. 18.11.2021 14:36
Aftur skelfur jörð við Vatnafjöll Jarðskjálfti 3,8 að stærð varð einn kílómetra Norðnorðvestur af Vatnafjöllum klukkan 13:21 í dag. Skjálftinn fannst vel á svæðinu og meðal annars í Þjórsárdal. 18.11.2021 13:48
Krefst þyngri dóms yfir Angjelin og að hin þrjú verði dæmd sek Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í Rauðagerðismálinu svokallaða. Saksóknari krefst þyngri refsingar í tilfelli Angjelin Sterkaj og þess að hinir þrír sakborningarnar, sem sýknaðir voru í héraði, verði sakfelldir. 18.11.2021 13:08
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent