
Fjögur sóttu um embætti forstöðumanns Rannís
Fjögur sóttu um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands sem auglýst var til umsóknar á dögunum.
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.
Fjögur sóttu um embætti forstöðumanns Rannsóknarmiðstöðvar Íslands sem auglýst var til umsóknar á dögunum.
Guðlaug Arnþrúður Guðmundsdóttir, Guðrún Anny Hálfdánardóttir og Hjalti Harðarson hafa öll verið ráðin í stjórnendastöður hjá Landsbankanum.
Jens Þórðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Geo Salmo, sem áformar uppbyggingu landeldis á laxi á Íslandi.
Bryndís Ragna Hákonardóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri hjá Icewear.
Jóhanna Margrét Gísladóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri þróunarsviðs Orkunnar, dótturfélags Skeljungs.
Elísa Arna Hilmarsdóttir og Gunnar Úlfarsson hafa verið ráðin hagfræðingar hjá Viðskiptaráði Íslands. Þau munu saman skipa hagfræðiteymi ráðsins og hafa umsjón með málefnastarfi Viðskiptaráðs, sinna greiningum, skrifum og útgáfu.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur ráðið Magnús Júlíusson sem aðstoðarmann ráðherra. Magnús kemur til Áslaugar Örnu frá orkusviði N1.
Hreinn Loftsson hefur ákveðið að hætta sem aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar, innanríkisráðherra. Í færslu á Facebook segir Hreinn ekki frá því af hverju hann tók þá ákvörðun að hætta en ráðning hans var tilkynnt þann fyrsta desember.
Ásdís Eir Símonardóttir og Óli Páll Geirsson hafa verið ráðin til upplýsinga- og fjártæknifyrirtækisins Lucinity
Eiríkur Örn Þorsteinsson, Freyr Eyjólfsson og Sigrún Haraldsdóttir hafa verið ráðin til Sorpu.
Gylfi Arinbjörnsson, fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands, hefur verið ráðinn sem tímabundinn ráðgjafi við mótun framtíðarskipulags nýs mennta- og barnamálaráðuneytis. Mun hann meðal annars vinna að yfirfærslu verkefna milli ráðuneyta.
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra hefur skipað Ólöfu Ástu Farestveit í embætti forstjóra nýrrar Barna- og fjölskyldustofu. Ólöf Ásta hefur verið settur forstjóri Barnaverndarstofu síðustu mánuði.
Páll Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og tekur við starfinu um áramótin. Páll hefur stýrt framleiðslusviði félagsins og tekur við starfinu af Eiríki S. Jóhannssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri í sex og hálft ár.
Kristján Einarsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri tæknifyrirtækisins Treble Technologies sem þróar hugbúnað á sviði hljóðhermunar.
Gróa Björg Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnarhátta og gæðamála hjá Skeljungi, hefur sagt starfi sínu lausu.
Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar á Akureyri, hefur verið kjörin varaformaður Kennarasambands Íslands. Hún tekur við embættinu af Önnu Maríu Gunnarsdóttur á þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.
Lovísa Guðrún Ólafsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Hólabrekkuskóla í Breiðholti í Reykjavík.
Kristján Jóhannesson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri hjá Gæðabakstri.
Andrea Sigurðardóttir blaðamaður hjá Viðskiptablaðinu hefur tekið við starfi hjá Marel en þar mun hún sinna verkefnastjórn á samskiptasviði.
Lóa Bára Magnúsdóttir hefur verið ráðin markaðsstjóri Origo.
Lísa Rán Arnórsdóttir hefur gengið til liðs við stefnumóta appið Smitten. Hún var áður vörustjóri farsíma-, net- og sjónvarpsþjónustu Nova. Lísa hóf störf þann 4. nóvember síðastliðinn.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, er sestur í helgan stein eftir 26 ár í starfi. Sveinn Sölvason hefur verið skipaður arftaki hans.
Iða Marsibil Jónsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Lax-inn fræðslumiðstöðvar fiskeldis í Reykjavík. Iða var áður ein af lykilmönnum Arnarlax, samkvæmt tilkynningu.
Guðmundur Ólafsson hefur verið ráðinn sem nýr forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá VÍS.
Örvar O. Ólafsson hefur bæst í hóp eigenda hjá PwC.
Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra og er þegar tekin til starfa í heilbrigðisráðuneytinu.
Ólafía Ingibjörg Þorvaldsdóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Deloitte á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Sunnu Dóru Einarsdóttur, meðeigenda Deloitte og sviðsstjóra Viðskiptalausna, sem hefur gengt því starfi undanfarin fimm ár.
Bjarni Örn Kærnested hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia.
Guðrún Björk Stefánsdóttir og Magnús Ólafur Kristjánsson hafa komið ný inn í eigendahópi KPMG.
Þórlindur Kjartansson, sem hefur starfað undanfarið sem ráðgjafi og pistlahöfundur á Fréttablaðinu, verður aðstoðarmaður Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur í utanríkisráðuneytinu.