
„Reddari“ tekinn með haug af kannabis og sand af seðlum
Landsréttur hefur fallist á kröfu lögreglu um að fá að rannsaka innihald síma manns, sem grunaður er um fíkniefnabrot í tveimur málum. Annars vegar póstlagði hann umslag sem innihélt kannabisefni og hins vegar var hann gripinn með mikið magn kannabisefna á sér ásamt hálfri milljón króna í seðlum.