
Afskipti af bifreið endaði með handtöku fjögurra manna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af bifreið í Garðabæ í dag en eftir að bifreiðin hafði verið stöðvuð kom í ljós að fjórir væru innanborðs sem var umfram þann farþegafjölda sem skráningarskírteini bifreiðarinnar heimilaði. Mennirnir fjórir voru síðan allir handteknir grunaðir um ólöglega dvöl hér á landi.