Flugeldum fyrir þrjár milljónir stolið Brotist var inn í flugeldagám fyrir utan Kiwanishúsið í Þorlákshöfn um hátíðirnar og flugeldum að andvirði þriggja milljóna króna var stolið. Frá þessu greinir björgunarsveitin Mannbjörg á Facebook. Innlent 26. desember 2020 21:11
Leituðu að kajakræðara en fundu bara hvali Lögregla, slökkvilið og björgunarsveitir á Akureyri leituðu í meira en tvær klukkustundir að kajakræðara sem talið var að hefði lent í vandræðum í sjónum milli Akureyrar og Svalbarðsstrandar í dag. Talið er að um missýn hafi verið að ræða, þar sem mikið var um hvali á svæðinu. Innlent 26. desember 2020 18:39
Missti stjórn á bifreið og ók á hús Klukkan hálf tvö í nótt barst lögreglu tilkynning um umferðaróhapp í miðbæ Reykjavíkur. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni og ók á hús með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist. Innlent 26. desember 2020 07:36
Leigubílstjóri grunaður um líkamsárás eftir að farþegi greiddi ekki farið Leigubílstjóri kallaði eftir aðstoð lögreglu í vesturbæ Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna farþega sem neitaði að greiða ökugjald fyrir farið. Farþeginn sagði lögreglu að bílstjórinn hefði slegið sig í höfuðið þegar hann reyndi að yfirgefa bílinn. Innlent 25. desember 2020 08:50
Hugsanlegt brot á samkomubanni í kirkju á aðfangadagskvöld Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning á ellefta tímanum í gærkvöldi um hugsanlegt brot á sóttvarnalögum í kirkju í miðbæ Reykjavíkur. Þegar lögreglu bar að garði taldi hún um það bil fimmtíu manns ganga frá kirkjunni. Innlent 25. desember 2020 08:15
Bjarni biðst afsökunar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur sent frá sér yfirlýsingu á Facebook, eftir að greint var frá því að lögregla hefði leyst upp fjölmennt samkvæmi sem hann og eiginkona hans voru viðstödd. Innlent 24. desember 2020 10:49
Bjarni Ben í Ásmundarsal þar sem lögregla leysti upp samkvæmi Bjarni Benediktsson, fjármála og efnahagsráðherra, var staddur í gleðskap í Ásmundarsal sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leysti upp á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 24. desember 2020 09:50
Ráðherra í fjölmennu samkvæmi sem lögregla stöðvaði Ráðherra í ríkisstjórn Íslands var á meðal 40-50 gesta í samkvæmi í sal í miðbæ Reykjavíkur sem lögregla hafði afskipti af í gær vegna brota á samkomutakmörkunum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki kemur fram um hvaða ráðherra er að ræða. Innlent 24. desember 2020 08:22
Skipstjóri Júlíusar Geirmundssonar ákærður Skipstjórinn á togaranum Júlíusi Geirmundssyni hefur verið ákærður fyrir brot á sjómannalögum eftir að grunur kom upp um kórónuveirusmit um borð. Tuttugu og tveir skipverjar sýktust af veirunni. Innlent 23. desember 2020 18:26
Arnar heill á húfi erlendis Arnar Sveinsson, 32 ára karlmaður sem lögreglan á Austurlandi lýsti eftir í byrjun desember, er kominn í leitirnar. Frá þessu er greint á heimasíðu lögreglunnar. Þar kemur fram að hann sé erlendis og heill á húfi. Innlent 23. desember 2020 13:33
Lögðu hald á hnífa og fíkniefni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann laust eftir miðnætti í nótt sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Innlent 23. desember 2020 06:30
Fleiri Seyðfirðingar fá að snúa heim Rýming í hluta Seyðisfjarðar hefur verið endurskoðuð og er fleiri íbúum nú heimilt að snúa aftur í bæinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi. Innlent 22. desember 2020 21:32
Látinn laus eftir samræður við lögreglu Lögreglan á Austurlandi telur ekki ástæðu til frekari aðgerða gagnvart manninum sem sagður er hafa hótað Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í dag. Innlent 22. desember 2020 16:22
Fjórir handteknir í umfangsmiklum aðgerðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók rétt í þessu fjóra menn í íbúð í Fossvoginum. Leitað var að einum manni sem er grunaður um innbrot í sama hverfi í nótt en þrír aðrir voru í sömu íbúð þegar lögreglu bar að. Innlent 22. desember 2020 16:13
„Það er verið að handtaka mig af lögreglunni fyrir að segja hug minn“ Sá sem hótaði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra hefur sent héraðsfréttaritinu Austurfrétt tvö SMS-skeyti. Innlent 22. desember 2020 14:46
Vísar því alfarið á bug að ÍSÍ hafi sigað lögreglunni á Viggó Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ vísar því á bug að hafa klagað Viggó Harald Viggósson til lögreglu. Innlent 22. desember 2020 14:21
Lögregla rannsakar hótanir í garð forsætisráðherra á Seyðisfirði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra bárust hótanir þar sem hún er stödd á Seyðisfirði í dag ásamt þremur ráðherrum úr ríkisstjórninni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Uppnám varð í Ferjuhúsinu, upplýsingamiðstöð Seyðisfjarðar, rétt fyrir tólf í dag. Innlent 22. desember 2020 12:34
Gísli sagður kærður fyrir líkamsárás og hættur hjá Sjálfstæðisflokknum Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóri Laxar Fiskeldis, er nýr formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins. Tók hann við stöðunni af Gísla Haukssyni, gjarnan kenndum við Gamma, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að Gísli hefði verið kærður fyrir líkamsárás. Innlent 22. desember 2020 11:22
Veittist að starfsmönnum verslunar í Vesturbæ Klukkan 19:43 í gærkvöldi barst lögreglu beiðni um aðstoð frá starfsmönnum í verslun í Vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 22. desember 2020 06:33
Virtu ekki sóttkví á hóteli í miðbænum Laust fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um einstaklinga á hóteli í miðbæ Reykjavíkur sem virtu ekki sóttkví. Innlent 21. desember 2020 06:29
Fjórtán ára Selfyssingur fundin heil á húfi Fjórtán ára gömul stelpa sem leitað var að á Selfossi í dag er fundin. Frá þessu greindi Lögreglan á Suðurlandi frá á Facebook-síðu sinni. Innlent 20. desember 2020 18:08
Rýmingu aflétt á Eskifirði en óvissustig áfram í gildi Rýmingu á Eskifirði, sem sett var á vegna skriðuhættu, hefur verið aflétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Eskifirði. Óvissustig almannavarna vegna skriðuhættu er þó enn í gildi á Austurlandi. Innlent 20. desember 2020 15:23
Hálft kíló af kókaíni til landsins með hraðsendingu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á hálft kíló af kókaíni í síðustu viku sem sent hafði verið til landsins með hraðsendingarþjónustu. Rannsókn málsins er á lokastigi. Innlent 20. desember 2020 07:28
Réðst á starfsmann sem fór fram á grímunotkun Einn var handtekinn í verslun í Breiðholti á sjöunda tímanum í gærkvöldi fyrir að ráðast á starfsmann. Starfsmaðurinn hafði beðið viðkomandi um að nota grímu inni í versluninni. Innlent 20. desember 2020 07:16
Óku utan í bíl manns eftir vítaverðan akstur á Hellisheiði Lögreglan á Suðurlandi greip til þess ráðs að aka utan í bíl karlmanns sem hafði ekið á vítaverðan hátt á Suðurlandsvegi frá höfuðborginni til Selfoss. Enginn slasaðist í aðgerðum lögreglu en ökumaðurinn var handtekinn. Innlent 20. desember 2020 00:06
Myndir frá Seyðisfirði sýna gríðarlega eyðileggingu Eyðileggingin í kjölfar aurskriðanna sem fallið hafa á Seyðisfjörð var áþreifanleg þegar fjölmiðlafólki var hleypt að bænum í dag. Innlent 19. desember 2020 16:40
Telja jarðlög enn óstöðug vegna skriðu sem féll í morgun Óheft umferð um Seyðisfjörð verður óheimil í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Þá verða rýmingar á Seyðisfirði og Eskifirði áfram í gildi. Skriða sem féll í morgun gefur vísbendingar um óstöðugleika í jarðlögum. Innlent 19. desember 2020 12:19
Sagðist ekki þurfa að nota grímu og neitaði að yfirgefa verslunina Rétt fyrir miðnætti þurfti lögregla að hafa afskipti af konu í verslun í Garðabæ sem þvertók fyrir það að nota andlitsgrímu og neitaði jafnframt að yfirgefa verslunina. Þegar lögreglu bar að garði vildi hún ekki gefa upp nafn og kennitölu og gaf á endanum upp rangt nafn. Innlent 19. desember 2020 08:01
Sex handteknir í aðgerðum tengdum barnaníði og vændi Sex voru nýverið handteknir í aðgerðum lögreglu gegn barnaníði á netinu og vændi. Fjórir voru handteknir grunaðir um að hafa haft barnaníðsefni í sinni vörslu og tveir handteknir vegna gruns um vændiskaup. Innlent 18. desember 2020 15:49
Bruninn á Bræðraborgarstíg: Ekki hægt að bjarga þeim sem létust Rannsakendur brunans á Bræðraborgarstíg telja líkur á að kveikt hafi verið í á tveimur stöðum í húsinu. Þeir telja að óháð því hvort um íkveikju var að ræða þá hafi fleiri samverkandi þættir haft áhrif á að eldsvoðinn varð jafn mannskæður og raun ber vitni. Innlent 18. desember 2020 14:08