Spennandi barnaleikrit í undirbúningi
Barnaleikritið Fjársjóðsleit með Ísgerði verður frumsýnt laugardaginn 29. janúar næstkomandi í leikhúsinu Norðurpóllinn á Seltjarnarnesi. Fjársjóðsleitin er gagnvirkt leikrit þar sem krakkarnir fá að taka virkan þátt í spennandi ævintýri þar sem ýmsar skrautlegar persónur verða á vegi þeirra með Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Magnúsi Guðmundssyni í aðalhlutverkum.