Er að taka yfir Olís-deildina aðeins 18 ára

Hinn ungi Gunnar Róbertsson hefur skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum Vals í Olís-deildinni. Gegn Fram í þarsíðustu umferð gerði hann 17 mörk í sjö marka tapi og í síðustu umferð skoraði hann 16 mörk í öruggum sigri gegn HK. Gunnar er fæddur árið 2008 og sonur Róberts Gunnarssonar, fyrrum landsliðsmanns í handbolta og aðstoðarþjálfara Vals í dag. Hann hefur því fylgt föður sínum eftir lengi vel í gegnum hans atvinnumannaferil. Við hittum Gunnar á Hlíðarenda á dögunum.

150
03:41

Vinsælt í flokknum Handbolti