Gerðar út fyrir tuttugu þúsund á hálftímann
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm vændiskaupendur í júní í tengslum við alþjóðlegar lögregluaðgerðir gegn vændismansali. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og lögregla segir að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann.