Fótbolti

Sjáðu mark Júlíusar sem upp­skar stig

Sindri Sverrisson skrifar
Júlíus Magnússon fékk faðmlög eftir markið sitt í kvöld.
Júlíus Magnússon fékk faðmlög eftir markið sitt í kvöld. Skjáskot/@fotbollskanalen

Júlíus Magnússon skoraði fyrsta mark leiksins og átti frábæran leik á miðjunni fyrir Elfsborg í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli á útivelli gegn AIK

Mark Júlíusar má sjá hér að neðan en það kom upp úr hornspyrnu á 25. mínútu leiksins.

Johan Hove náði hins vegar að jafna metin fyrir AIK rétt fyrir hálfleik og Sixten Gustafsson virtist hafa tryggt AIK sigur með marki á 85. mínútu. Þá var þó enn tími til stefnu fyrir Rasmus Wikström til að skora jöfnunarmark og tryggja Elfsborg eitt stig.

Júlíus lék allan leikinn og Ari Sigurpálsson var í liði Elfsborg fram á 70. mínútu þegar honum var skipt út af. Liðið er í 5. sæti eftir 26 leiki með 43 stig en AIK í 7. sæti með 38 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×