Enski boltinn

Stuðnings­mennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leik­mennina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael Carrick á mögulega ekki marga daga eftir hjá félginum.
Michael Carrick á mögulega ekki marga daga eftir hjá félginum. Vísir/Robin Jones / Getty Images)

Stuðningsmenn Manchester United létu óánægju sína skýrt í ljós eftir 3-0 tap liðsins gegn Bournemouth á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Athygli vakti hversu ólík viðbrögð stuðningsmannanna voru við Michael Carrick, knattspyrnustjóra liðsins, og leikmönnunum. Carrick fékk stuðning og lófatak frá stuðningsmönnum í Stretford End-stúkunni þegar hann gekk út af vellinum eftir leik og þakkaði stuðningsmönnum í leiðinni.

Um leið og Carrick var genginn af velli snerust viðbrögðin hins vegar við. Leikmenn Manchester United, sem fylgdu honum í átt að göngunum, fengu háværar baulanir frá stuðningsmönnunum.

Myndskeið af atvikinu hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem stuðningsmennirnir virðast gera skýran greinarmun á afstöðu sinni til knattspyrnustjórans og leikmannahópsins.

Átta leikir án sigurs

Manchester United hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu og tapið gegn Bournemouth var enn eitt áfallið fyrir Carrick. Liðið hefur nú leikið átta leiki í röð án sigurs í öllum keppnum.

Bournemouth skoraði þrjú mörk á Old Trafford og skildi United eftir í erfiðri stöðu.

Carrick var spurður út í viðbrögð stuðningsmannanna eftir leikinn og sagðist hafa upplifað blendnar tilfinningar. Hann hefði ekki búist við jafn miklum stuðningi en kunni vel að meta viðbrögðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×