Samstarf

Ný tækni gjör­breytir öryggi heimila og fyrir­tækja

Vélar og verkfæri
„Við finnum greinilega fyrir því að bæði einstaklingar og fyrirtæki eru orðin meðvitaðri um mikilvægi þess að tryggja húsnæði sitt,“ segir Sigurjón Rafn Rögnvaldsson, aðstoðarverslunarstjóri Lykillausna.
„Við finnum greinilega fyrir því að bæði einstaklingar og fyrirtæki eru orðin meðvitaðri um mikilvægi þess að tryggja húsnæði sitt,“ segir Sigurjón Rafn Rögnvaldsson, aðstoðarverslunarstjóri Lykillausna.

Öryggismál heimila, húsfélaga og fyrirtækja hafa sjaldan verið jafn mikilvæg og nú. Samhliða aukinni áherslu á öruggar læsingar og aðgangsstýringar hefur tækninni fleygt fram og úrval lausna er orðið fjölbreyttara en áður.

Hjá Lykillausnum, sem er verslun og lásasmíðadeild Véla og verkfæra, er boðið upp á allt frá hefðbundnum höfuðlyklakerfum til rafrænna aðgangskerfa sem gera fólki kleift að stjórna aðgangi að húsnæði með einföldum og öruggum hætti.

„Það hefur væntanlega aldrei skipt jafn miklu máli að hafa öryggismálin í lagi. Við finnum greinilega fyrir því að bæði einstaklingar og fyrirtæki eru orðin meðvitaðri um mikilvægi þess að tryggja húsnæði sitt,“ segir Sigurjón Rafn Rögnvaldsson, aðstoðarverslunarstjóri Lykillausna.

Hann segir áhyggjur af innbrotum og þjófnaði hafa orðið til þess að sífellt fleiri leiti ráðgjafar um öryggislausnir. Ekki sé síður mikilvægt að hafa góða yfirsýn yfir hverjir hafi aðgang að byggingum.

„Til okkar leita reglulega fulltrúar húsfélaga og fyrirtækja vegna þess að komið hefur í ljós að fyrrverandi eigendur, leigjendur eða starfsmenn eru enn með lykla að húsnæðinu. Það getur skapað óþarfa áhættu, sérstaklega í fjölbýlishúsum þar sem komið hefur upp þjófnaður eða skemmdarverk í sameign.“

Einn lykill í stað margra

Meðal þeirra lausna sem Lykillausnir bjóða upp á eru hefðbundin höfuðlyklakerfi sem henta vel fyrir fjölbýlishús og atvinnuhúsnæði. Með slíkum kerfum er hægt að nota sama lykilinn að mörgum hurðum án þess að allir hafi aðgang að sömu rýmum.

„Í fjölbýlishúsi getur íbúi til dæmis notað einn lykil að íbúðinni sinni, geymslunni og sameigninni. Það er óþarfi að vera með marga lykla á kippunni þegar einn lykill getur sinnt þessu öllu,“ segir Sigurjón.

Fyrirtækið býður einnig upp á rafrænar aðgangsstýringar þar sem hefðbundnum lyklum er skipt út fyrir aðgangskort eða svokallaða aðgangsdropa. Lesarar eru þá settir upp við hurðir og hægt er að stýra því hverjir hafa aðgang að tilteknum svæðum. „Við erum með lausnir fyrir bæði húsfélög og fyrirtæki í mismunandi öryggisflokkum. Það fer einfaldlega eftir þörfum hvers og eins hvaða kerfi hentar best.“

Hægt að loka á týnda lykla

Ein helsta nýjungin hjá Lykillausnum er rafræna höfuðlyklakerfið ASSA ABLOY Pulse, sem sameinar kosti hefðbundinna lykla og rafrænna aðgangsstýringa.

„Þetta er mikil breyting frá því sem fólk hefur átt að venjast. Í hefðbundnum kerfum er hægt að loka á týnt aðgangskort en ef venjulegur lykill týnist þarf oft að skipta um sylinder. Með Pulse getum við hins vegar lokað rafrænt á aðgang týnda lykilsins, bæði í vegglesurum og sylinderum,“ útskýrir Sigurjón.

Þetta getur sparað húsfélögum og fyrirtækjum bæði tíma og kostnað. Jafnframt verður mun auðveldara að halda utan um aðgangsheimildir og tryggja öryggi bygginga. „Kerfið hefur reynst mjög vel og við ætlum að leggja enn meiri áherslu á það í vetur, sérstaklega fyrir húsfélög og lítil og meðalstór fyrirtæki.“

Dyrasíminn tengist farsímanum

Tækninni fleygir stöðugt fram og Sigurjón segir samstarfið við ASSA ABLOY skila reglulega nýjum möguleikum. Meðal nýjunga sé samþætting dyrasímakerfa við rafrænar aðgangsstýringar.

„Nú er hægt að tengja dyrasímann við kerfið þannig að hann virki jafnframt sem vegglesari eða takkaborð. Íbúinn getur þá séð í farsímanum sínum hver er að hringja dyrabjöllunni og opnað fyrir viðkomandi, jafnvel þótt hann sé ekki heima.“

Ekki þurfi heldur alltaf að koma upp sérstakri nettengingu í húsnæðinu. Í boði séu einnig lausnir með 5G-tengingu þar sem SIM-kort í búnaðinum gerir honum kleift að tengjast netinu. Fyrir einstaklinga býður Lykillausnir einnig upp á þjófavarnarkerfi, öryggismyndavélar og snjalllæsingar frá Yale. Þessar lausnir henta meðal annars fyrir heimili og sumarbústaði. „Þetta eru einfaldar lausnir sem fólk getur sett upp sjálft. Þú getur fylgst með eigninni í farsímanum og fengið tilkynningu ef myndavél nemur hreyfingu eða þjófavarnarkerfið fer í gang.“

Þekking og reynsla skipta máli

Sigurjón leggur áherslu á að góð þjónusta felist ekki eingöngu í sölu búnaðar heldur einnig í ráðgjöf, innleiðingu og eftirfylgni. „Við aðstoðum viðskiptavini við að velja réttu lausnina, veitum þeim aðstoð við uppsetningu og erum til staðar þegar bæta þarf við kerfin eða tæknilegar spurningar vakna.“

Vélar og verkfæri eiga sér langa sögu, allt aftur til ársins 1919, og segir Sigurjón þá reynslu vera einn helsta styrkleika fyrirtækisins. „Við búum yfir mikilli þekkingu, áratuga reynslu og sterkum viðskiptatengslum. Þar skiptir náið samstarf okkar við ASSA ABLOY einnig miklu máli. Markmiðið er alltaf það sama: að finna öruggar og hentugar lausnir sem viðskiptavinir geta treyst á,“ segir Sigurjón að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×