Enski boltinn

Arteta fram­lengir við Arsenal

Valur Páll Eiríksson skrifar
Arteta framlengdi samning sinn til 2030.
Arteta framlengdi samning sinn til 2030. EPA

Mikel Arteta hefur framlengt samning sinn sem þjálfari Englandsmeistara Arsenal. Félagið tilkynnti um þetta í morgun.

Arteta stýrði Arsenal til fyrsta Englandsmeistaratitils félagsins í 22 ár er það fagnaði titlinum í vor. Arsenal varð þá meistari í 14. sinn og Arteta sjöundi þjálfarinn í sögu félagsins til að vinna titilinn.

Arsenal komst einnig í úrslit Meistaradeildar Evrópu síðasta sumar en tapaði í vítaspyrnukeppni gegn Paris Saint-Germain.

Arteta hefur stýrt liðinu frá árinu 2019 en Arsenal hefur síðan tekið stór skref fram á við til að verða eitt besta lið Evrópu. Hann hefur stýrt liðinu í 361 leik og unnið 62,05 prósent leikjanna.

Arteta framlengdi samning sinn í dag fram í júní árið 2030. Þjálfarateymi liðsins framlengdi einnig samninga sína við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×