Fótbolti

Lof­söng Sveindísi: „Tekið gríðar­legum fram­förum frá því í fyrra“

Sindri Sverrisson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir heldur áfram að bæta sig og hefur verið frábær fyrir Angel City í ár.
Sveindís Jane Jónsdóttir heldur áfram að bæta sig og hefur verið frábær fyrir Angel City í ár. Getty/Brenton Tse

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir hefur slegið í gegn í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta í ár á sinni annarri leiktíð vestanhafs. Einstakur hraði hennar og framfarir gera að verkum að hún gæti keppt um gullskóinn í þessari gríðarsterku deild.

Sveindís er nú mætt til Króatíu vegna leikjanna mikilvægu við Króata í fyrri umferð umspils um sæti á HM. Þar var afmælissöngurinn sunginn á fyrstu æfingu.

Ísland mætir heimakonum á föstudaginn og seinni leikurinn er svo á Laugardalsvelli næsta þriðjudag þar sem hraði og hæfileikar Sveindísar fá vonandi að njóta sín.

Í Bandaríkjunum spilar Sveindís í sjálfri Englaborginni með Angel City og hún fær sviðsljósið á samfélagsmiðlum félagsins þar sem Cassidy Chriest, tæknilegur aðstoðarþjálfari, fjallar um íslensku landsliðskonuna.

„Hæfileiki Sveindísar til að nota hraðann til að slíta sig frá varnarmönnum, brjótast í gegnum öftustu línu og skapa færi er eitthvað sem gerir hana einstaka, sérstaklega í þessari deild. Að vera fljótur framherji veitir manni svo sannarlega forskot í sókninni því maður getur brotist í gegnum öftustu línu á miklum hraða og komið í veg fyrir að varnarliðið nái að skila sér til baka. Það hjálpar liðinu því að skapa færi mun hraðar og heldur tímaforskotinu þegar við reynum að komast að markinu,“ segir Chriest.

Sveindís hefur skorað átta mörk í bandarísku deildinni í ár, eftir að hafa komið á miðju tímabili í fyrra frá Wolfsburg, og er næstmarkahæst í Angel City. Baráttan um Gullskóinn í ár er þó fyrst og fremst á milli Ashley Sanches og Barbra Banda en Sanchez er með 20 mörk og Banda 17.

Í baráttu um Gullskóinn ef hún heldur svona áfram

Angel City hefur verið á mikilli siglingu og fengið 17 af 21 stigi mögulegu í síðustu leikjum, með Sveindísi ávallt á sínum stað í fremstu víglínu.

„Sveindís hefur skorað nokkur frábær mörk á þessu tímabili með því að nýta hraðann eða hæfileikann til að slíta sig lausa, brjótast í gegn og komast inn fyrir vörnina. En uppáhaldsmarkið mitt hjá henni í ár kom reyndar eftir hennar eigið innkast, þar sem hún náði boltanum aftur og kláraði færið frá vítateigslínunni.

Sveindís hefur tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra og ef hún heldur áfram á þessari braut verður hún í baráttunni um Gullskóinn. Það er það sem gerir fótboltann í LA spennandi og heldur okkur í fremstu röð í NWSL þegar kemur að marktækifærum,“ segir Chriest.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×