Fótbolti

„Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ís­land“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson hefur glímt við rifbeinsbrot allan landsleikjagluggann.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur glímt við rifbeinsbrot allan landsleikjagluggann. vísir/Anton

Gylfi Þór Sigurðsson hefur lagt mikið á sig til að leika með íslenska landsliðinu í yfirstandandi landsleikjaglugga. Hann fær verðskuldaða hvíld næstu rúmu vikuna til að jafna sig á rifbeinsbroti.

Klippa: Gylfi eftir leikinn í Tallinn

„Gott að halda hreinu en erfiður leikur og erfiðar aðstæður. Mér fannst aðeins meiri orka í þeim og mér fannst þeir aðeins yfir í návígjum og seinni boltum til að ná tökum á leiknum og koma sér í ágætis stöður í skyndisóknum. Bara fínasta stig þannig séð á nokkuð erfiðum útivelli miðað við aðstæður. Við erum í góðum málum í riðlinum og hlökkum til næsta glugga,“ segir Gylfi Þór um markalaust jafntefli kvöldsins við Eistland í Tallinn.

Ísland hélt þar með hreinu í þriðja leiknum í röð og eftir standa átta stig vegna tveggja jafntefla við Eista og sigra á Lúxemborg og Búlgaríu.

„Varnarleikurinn var mjög fínn í þessum glugga, eitt mark á okkur og haldið hreinu í síðustu þremur. Því miður skoruðum við ekki í dag og vantaði smá upp á gæði eða hreyfingu fram á við. Þetta var nokkuð erfiður leikur svo ég held að við vorum sæmilega sáttir heim.“

Gylfi Þór er rifbeinsbrotinn og hefur verið allan landsleikjagluggann. Það tók því á að koma sér í gegnum það og spila leikina. Aðspurður um stöðuna á sér eftir leikinn segir Gylfi:

„Staðan er ágæt. Það eru komnar einhverjar fimm vikur síðan sirka en engin hvíld, margir leikir og æfingar. Ég held að ég fái núna smá frí til að jafna mig hjá Víkingunum. Þetta þarf bara að gróa svo ef ég verð ekki í neinum kontakt næstu sjö til tíu dagana vonandi jafnar þetta sig nokkuð fljótt svo ég nái síðasta leiknum eða síðustu tveimur á tímabilinu.“

Mikið á sig lagt til að spila fyrir landsliðið og krafturinn mikill í Gylfa í landsleikjunum.

„Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland. Þó að við höfum náð því markmiði sem við vildum í deildinni kom það aldrei til greina að missa af þessum glugga. Ég ræddi við Arnar fyrir valið og þá var ég töluvert verri, nýbúinn að brotna. Maður bara sprautar sig fyrir leiki og síðan dílar maður við það daginn eftir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×