Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 15:30 Þessir tveir að spila saman? Getty Patrick Vieira, fyrrverandi miðjumaður Arsenal, átti fund með Sir Alex Ferguson um möguleg skipti frá Arsenal til Manchester United snemma á þessari öld. Gríðarmikill rígur var milli liðanna.
Vieira er goðsögn hjá Arsenal og hafði mikil áhrif á liðið á meðan níu ára dvöl hans stóð frá 1996 til 2005. Hann vann þrjá deildartitla með félaginu og var hluti af liði Arsenal sem fór taplaust í gegnum tímabilið 2003-04. Áður en kom að því sögulega tímabili fékk hann þó tækifæri til að ganga í raðir Manchester United á fyrstu árum þessarar aldar. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports) „Ég gat farið til Real Madrid tvisvar og ég fékk meira að segja tækifæri til að fara til Manchester United,“ segir Vieira í viðtali við Sky Sports. „Ég átti fund með Sir Alex Ferguson. Ég ber virðingu fyrir honum og gat ekki sagt nei við fundi þar sem hann var stór í ensku úrvalsdeildinni. Við hittumst og ræddum málin. Hann sagði mér frá þeirri sýn sem hann hafði á lið Manchester United og liðið sem hann vildi byggja upp,“ „Hann vildi spila mér með Roy Keane á miðjunni. Með Ryan Giggs vinstra megin, David Beckham hægra megin, og Paul Scholes á bakvið Ruud van Nistelrooy. Það hefði ekki verið slæmt lið,“ segir Vieira. Keane og Vieira elduðu saman grátt silfur í hatrömmum slögum Man Utd og Arsenal um árabil.Getty „En ég gat ekki yfirgefið Arsenal. Ég var of hamingjusamur þar og þeir voru á sinni leið að búa til eitthvað sérstakt fyrir félagið og það varð raunin,“ segir Vieira og vísar til tímabilsins 2003-04. Vieira fór að endingu frá Arsenal til Juventus á Ítalíu árið 2005. Hann skipti þaðan til Inter Milan þegar Juventus var dæmt niður um deild sumarið eftir og lauk svo ferlinum á miðju Manchester City. Vieira fór út í þjálfun eftir að leikmannaferlinum lauk þar sem hann hefur stýrt New York City, Nice, Crystal Palace, Strasbourg, Genoa og er í dag landsliðsþjálfari Senegal en Frakkinn fæddist á sínum tíma í Dakar áður en hann flutti til Frakklands.
Arsenal FC Manchester United Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Sjá meira