16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Valur Páll Eiríksson skrifar 15. september 2026 20:55 Hinn 16 ára gamli Max Dowman er gríðarmikið efni. Hann setti tvö fyrir Arsenal í kvöld. Fimm leikir fóru fram í enska deildabikarnum í fótbolta í kvöld. Liverpool og Arsenal voru á meðal liða sem fóru áfram.
Stórleikur kvöldsins var milli Liverpool og Tottenham á Anfield og bæði lið mættu með breytt lið til leiks frá því sem sést hefur í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham var enn að leita fyrsta marksins á tímabilinu og hafði spilað fjóra leiki án þess að skora í deildinni. Liðið var öflugt til að byrja með og tvö fín færi fóru forgörðum í fyrri hálfleik. Púllarar refsuðu en Alexis Mac Allister skoraði laglegt mark með skoti upp í þaknetið frá vítateigslínu til að koma Liverpool yfir um miðjan fyrri hálfleik. Mac Allister skoraði og lagði upp.Vísir/Getty Liverpool var 1-0 yfir í hléi og snemma í síðari hálfleik tvöfaldaði Cody Gakpo foyrstuna eftir fína sókn sem lauk með sendingu Mac Allister á Gakpo sem skar inn á hægri fótinn vinstra megin í teignum og negldi boltann í markið. Eftir tæplega 70 mínútur gerðust hins vegar þau undur og stórmerki að Tottenham skoraði mark, þeirra fyrsta á leiktíðinni. Conor Gallagher reis þá hæst í teignum og stangaði boltann í netið eftir horn. Tottenham komst ekki nær og undir lok leiks innsiglaði Dominik Szoboszlai 3-1 sigur Liverpool í rigningunni. Hann fékk þá skoppandi bolta um 10 metrum fyrir utan teig og negldi hann á loftið í skeytin. Gjörsamlega frábært mark Ungverjans sem batt enda á fínasta leik. Dowman öflugur Arsenal sótti Ipswich heim á Portman Road þar sem hinn 16 ára gamli Max Dowman skoraði eftir aðeins sjö mínútna leik og Noni Madueke tvöfaldaði forystuna eftir rúmt korter. Arsenal var 2-0 yfir í hálfleik en ungstirnið Dowman skoraði eftir aðeins tvær mínútur í síðari hálfleiknum. Mikel Merino skoraði svo fjórða markið þegar 58 mínútur voru liðnar en Anis Mehmeti minnkaði muninn fjórum mínútum síðar fyrir Ipswich. Chupa Akpom setti þá annað mark Ipswich í uppbótartíma og leiknum lauk 4-2 fyrir Arsenal sem fer áfram. West Ham og Fulham áttust við í Lundúnaslag. Rodrigo Muniz kom Fulham yfir eftir þrettán mínútur en Brassinn Morato jafnaði fyrir Hamrana þremur mínútum síðar. César Palacios kom Fulham aftur yfir eftir 37 mínútna leik en annar Brassi, Pablo, jafnaði öðru sinni fyrir West Ham rétt fyrir hlé. 2-2 stóð fram á 78. mínútu þegar Norðmaðurinn Oscar Bobb skoraði sigurmarkið fyrir Fulham í 3-2 sigri. Hákon Rafn Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Brentford sem vann 2-1 útisigur á Reading þökk sé mörkum Callum Wilson og Fábio Carvalho. Í fimmta leik kvöldsins áttust við C-deildarliðin Peterborough og Barnsley. Skrautlegum leik lauk með 3-3 jafntefli en heimamenn í Peterborough fóru áfram eftir vítaspyrnukeppni.
Arsenal FC Liverpool FC Tottenham Hotspur Ipswich Town FC Brentford FC West Ham United Fulham FC Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Markvörður Eista meiddur Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira