Palacios til Ipswich Stefán Árni Pálsson skrifar 27. ágúst 2026 23:01 Exequiel Palacios í leik með Bayer Leverkusen á síðasta tímabili. vísir/getty Ipswich Town hefur gengið frá kaupum á argentínska miðjumanninum Exequiel Palacios frá Bayer Leverkusen.
Palacios, sem er 27 ára, skrifar undir fjögurra ára samning við Ipswich en félagaskiptagjaldið hefur ekki verið gefið upp. Hann verður þar með fyrsti heimsmeistarinn til að ganga í raðir félagsins. Palacios varð heimsmeistari með Argentínu í Katar árið 2022 og var einnig hluti af liðinu sem komst í úrslitaleik HM í sumar. Þá hefur hann tvívegis orðið Suður-Ameríkumeistari með argentínska landsliðinu. „Þetta er félag með mikinn metnað og ég er spenntur fyrir því að spila fótbolta á Englandi og mæta nokkrum af bestu félögum og leikmönnum heims,“ sagði Palacios eftir að gengið var frá félagaskiptunum. Hann er ellefti leikmaðurinn sem Ipswich fær til sín í félagaskiptaglugganum í sumar. Palacios byrjaði leik Argentínu gegn Jórdaníu á HM í sumar og var það eini leikurinn hans á mótinu. Byrjaði hjá River Plate Palacios hóf ferilinn hjá uppeldisfélagi sínu River Plate og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu árið 2015. Hann varð meðal annars Suður-Ameríkumeistari með félaginu árið 2018 og vann argentínska bikarinn tvívegis. Árið 2020 hélt hann til Þýskalands og gekk til liðs við Leverkusen. Þar varð hann hluti af sögulegu liði félagsins sem vann þýsku deildina í fyrsta sinn tímabilið 2023-24. Undir stjórn Xabi Alonso vann Palacios einnig þýska bikarinn og þýska ofurbikarinn. Hann kveður Leverkusen eftir sex ár þar sem hann lék 186 leiki og skoraði 15 mörk. Ipswich vann Sunderland 2-1 í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar og er einnig komið í þriðju umferð enska deildabikarsins eftir sigur á Leicester City.
Enski boltinn Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Grindavík mokar inn verðlaunum Körfubolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira