Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu Birgir Olgeirsson skrifar 25. ágúst 2026 11:25 Madonna gaf Like a Prayer út árið 1989. Ný útgáfa lagsins, þar sem söngurinn og trommurnar voru búin til með gervigreind, hefur slegið í gegn í Ástralíu. Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista.
Ástralski plötusnúðurinn Josh Fawaz gaf út lagið í apríl. Síðan hefur það orðið mest spilaða lagið í áströlsku útvarpi, fengið tæplega 48 milljónir spilana á Spotify og setið á vinsældalistum í sextán vikur. Lagið er nú efst á lista ARIA yfir vinsælustu áströlsku danslögin. Greint er frá þessu á vef AP. Þegar lagið tók að heyrast um allt land vöknuðu spurningar um sönginn. Enginn söngvari var skráður fyrir flutningnum og nokkrir tónlistarframleiðendur töldu sig heyra skýr merki þess að röddin væri tilbúin. Upplýsingunum um lagið á Spotify var síðar breytt. Þar kemur nú fram að söngurinn og trommurnar hafi verið búin til með gervigreind. Fawaz hefur sagt að hann noti tæknina sem verkfæri og að hann hugsi fyrst og fremst um að gefa fólki tónlist sem það vilji hlusta á. Reglunum breytt frá föstudegi ARIA, sem heldur utan um opinbera vinsældalista í Ástralíu, hefur nú ákveðið að lög sem eru að mestu eða öllu leyti búin til með gervigreind fái ekki lengur sæti á listunum. Reglurnar taka gildi á föstudag. Listamenn mega áfram nota tæknina við tónlistargerð, en manneskja þarf að hafa flutt aðalsönginn og helstu hljóðfæri upptökunnar. Þar sem bæði röddin og trommurnar í Like a Prayer voru búnar til með gervigreind er líklegt að lagið falli út af listunum. Endanleg ákvörðun hefur þó ekki verið tekin og Fawaz getur mótmælt niðurstöðunni. Annabelle Herd, framkvæmdastjóri ARIA, segir reglurnar eiga að tryggja að opinberir vinsældalistar verðlauni áfram mannlega listsköpun. Hún hefur jafnframt hvatt útvarpsstöðvar landsins til að setja sér sambærileg viðmið.
Tónlist Gervigreind Ástralía Menning Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira