Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Aron Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2026 13:45 Eiður Smári Guðjohnsen og Hallgrímur Jónasson, þjálfarar KA Mynd af Eiði Smára: KA | Mynd af Hallgrími : Guðmundur Þórlaugarson Alberti Brynjari Ingasyni, sérfræðingi Stúkunnar á Sýn Sport, þykir það stórfurðulegt að Hallgrímur Jónsson sé enn í þjálfarateymi Bestu deildar liðs KA nú þegar að Eiður Smári Guðjohnsen hefur verið fenginn inn í teymið sem aðalþjálfari liðsins.
Rætt var um stöðu KA liðsins og innkomu Eiðs Smára í þjálfarateymið í Stúkunni í gærkvöldi en liðið tapaði sínum fyrsta leik undir stjórn Eiðs gegn KR um síðastliðna helgi 5-3. Hvorki hefur gengið né rekið hjá KA í deildinni undir stjórn Hallgríms Jónassonar og tók hann skref til baka í teyminu svo Eiður Smári gæti komið inn og reynt að bjarga málunum. KA er í fallsæti þegar að nítján umferðir eru liðnar af Bestu deildinni og tvær umferðir í að henni verði skipt upp. Eiður Smári mætti í viðtöl fyrir og eftir leik gegn KR og vakti myndskeið KA af æfingasvæðinu dögum fyrir leik athygli þar sem sjá mátti bersýnilega að Eiður Smári stýrði ferðinni á meðan að Hallgrímur hélt sig til hlés. Skiptar skoðanir voru á því meðal sérfræðinga Stúkunnar varðandi áframhaldandi hlutverk Hallgríms í teyminu. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnufélag Akureyrar (@ka_fotbolti) „Sumir segja „hvaða bull er í gangi hérna.“ Lið eru alltaf að reka þjálfara og byrja upp á nýtt. Er kannski ekki ágætt að hugsa þetta aðeins öðruvísi eins og KA er kannski að gera núna?“ sagði Sigurbjörn Hreiðarsson í Stúkunni. „Ég held líka að Eiður Smári sé ekki að koma til að stela einhverri þrumu þarna. Ég tel að hann sé að mæta þarna fullur eldmóðs og áttar sig á því þegar að hann kemur þarna norður að Hallgrímur þekkir þetta allt, hefur gert mikið fyrir félagið. Ég held Eiður hafi viljað vera með hann með sér í þessu. En Eiður Smári verður alltaf fronturinn það sem eftir er.“ Klippa: Furðar sig á þjálfaramálum KA Albert er ekki eins hrifinn af þessu fyrirkomulagi hjá KA. „Eiður er bara þjálfari liðsins. Finnst þér þetta ekkert furðulegt?“ sagði Albert og beindi orðum sínum að Sigurbirni sem svaraði að þetta væri vissulega nýstárlegt. „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna,“ bætti Albert við og hélt áfram: „Liðið undir stjórn Hallgríms er búið að vera slappt eiginlega yfir öll þessi ár. Þetta hefur verið á niðurleið öll þessi ár síðan að hann tók við. Okey þeir unnu bikarúrslitaleikinn og það var vel gert. Hallgrímur hefur sýnt að hann getur lagt upp einn og einn stóran leik. Gengið upp á síðkastið er búið að vera skelfilegt. Þetta er tólfti tapleikur liðsins í sumar, sá níundi í síðustu þrettán leikjum. Hann veit alveg að staða sín er í hættu. Það er bara mjög augljóst.“ Umræðuna um stöðu KA í Stúkunni má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Besta deild karla KA Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira