Íslenski boltinn

„Maður var aldrei al­veg ró­legur“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Rúnar Kristinsson var sáttur með sigurinn eftir mikið stress á lokamínútum leiksins. 
Rúnar Kristinsson var sáttur með sigurinn eftir mikið stress á lokamínútum leiksins.  Vísir / Hulda Margrét

„Það er bara frábært að vinna og ná að halda fengnum hlut, ef svo má segja,“ sagði Rúnar Kristinsson eftir 3-4 sigur Fram gegn Breiðablik á Kópavogsvelli í kvöld. Fram skoraði fjögur mörk í fyrri hálfleik en þurfti að berja Blikana af sér í seinni hálfleik.

„Við gerðum þetta aftur erfitt fyrir okkur, í heimaleiknum á móti Breiðabliki vorum við líka 4-1 yfir [í hálfleik] og aftur núna. Ég reyndi að vera reiður í hálfleik, skamma strákana aðeins til að koma þeim í gírinn fyrir seinni hálfleikinn en við komum samt hálfsofandi út.

Svo skora þeir [Blikar] tvö mörk á þriggja mínútna kafla og voru aðeins ólíkir því sem þeir spila venjulega. Það var mikið af löngum boltum og þeir gáfu margar góðar spyrnur inn á teiginn sem við, með okkar stóru menn, áttum í mesta basli með að hreinsa. Það var alltof mikið eftir þegar staðan var 4-3 þannig að maður var aldrei alveg rólegur,“ bætti Rúnar við eftir leik.

Mörkin sem Breiðablik skoraði í seinni hálfleik fylgdu svipaðri uppskrift og komu bæði eftir langan bolta inn fyrir vörn Fram frá hægri bakverðinum Óla Val Ómarssyni.

„Oftast hef ég verið sáttur við að fá fyrirgjafir úr þessari stöðu, við erum það sterkir á þessu svæði. Ég vil það frekar en að það sé spilað í gegnum okkur. Við höfum náð að eiga við þetta í meira og minna allt sumar en ekki þarna. Ég breytti síðan í 5-4-1 síðustu mínúturnar til að koma betur í veg fyrir þetta og fækka fyrirgjöfunum, en þetta var stress. Smá panikk í restina og gott að sigla þessu í höfn. Það gleður mig því það er ekki auðvelt að vinna hér.“

Fram saknaði Fred Saraiva og Simon Tibbling af miðsvæðinu í kvöld en Rúnar segir stutt í þá.

„Ég held að þeir muni báðir reyna að æfa með okkur á morgun og svo aftur á fimmtudaginn, þegar við undirbúum leikinn á móti KA í næstu umferð. Vonandi verða þeir klárir í þann slag en ég veit það ekki enn þá.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×