Enski boltinn

Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Totten­ham“

Aron Guðmundsson skrifar
De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, niðurlútur á hliðarlínunni í erfiðum leik liðsins gegn Brentford um helgina.
De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, niðurlútur á hliðarlínunni í erfiðum leik liðsins gegn Brentford um helgina. Vísir/Getty

Vandræði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni halda áfram. Eftir erfitt síðasta tímabil ríkti bjartsýni hjá stuðningsmönnum liðsins eftir leikmannakomur sumarsins en þeim var kippt niður á jörðina strax í fyrstu umferð. Farið var yfir stöðu mála hjá liðinu í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gær. 

„Það er búið að kvarta undan því í gegnum tíðina að Tottenham hafi ekki verið að eyða peningum á leikmannamarkaðnum. Nú er búið að eyða og þetta er enn þá bara sama gamla Tottenham,“ sagði Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Sunnudagsmessunnar. 

Klippa: Sama gamla Tottenham

Engu hefur verið til sparað þegar að kemur að leikmannakaupum hjá Tottenham fyrir tímabilið og fúlgum fjár verið varið í leikmenn á borð við Sandro Tonali, Mateus Fernandes og Jan Paul van Hecke.

Ekki á að endurtaka vonbrigða tímabilið frá því síðast þegar Tottenham rétt slapp við fall en 3-0 tap gegn Brentford í fyrstu umferð sló á gleði stuðningsmanna liðsins eftir leikmannakaup sumarsins.

Orðrómar um frekari leikmannakomur eru svo uppi. 

„Þeir sem voru upp í stúku hjá liðinu í þessum leik gegn Brentford. Þú ert með Micky van de Ven, Pedro Porro, Kulusevski, Sarr, Xavi Simons og það er verið að reyna fá Cody Gakpo til liðs við félagið, Savinho, bara komið með þetta allt saman. Hann ber sig ágætlega, blessaður De Zerbi, en ég myndi ekki sofa á nóttunni með alla þessa gæja á bakinu,“ bætti Kjartan Henry Finnbogason, annar sérfræðingur Sunnudagsmessunnar við. 

Umræðuna um Tottenham úr Sunnudagsmessunni má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×