Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. ágúst 2026 09:22 Messi gekk niðurlútur af velli í nótt. Leonardo Fernandez/Getty Images Lionel Messi skoraði annan leikinn í röð fyrir Inter Miami en það dugði skammt í 1-2 tapi gegn Toronto FC. Miami-liðið hefur fengið eitt stig úr síðustu fimm leikjum.
Messi fann netmöskvana á 82. mínútu leiksins í nótt eftir stoðsendingu Rodrigo De Paul en Miami var þá 2-0 undir eftir mörk Josh Sargent og Derrick Etienne á þriggja mínútna kafla þegar um klukkustund var liðin. ¡GOOOL de Leo Messi!El 🐐🇦🇷 corre y define a favor de @InterMiamiCF tras una genialidad de asistencia de Rodrigo de Paul. pic.twitter.com/ORTgv6KLDU— MLS Español (@MLSes) August 23, 2026 Í síðustu fimm leikjum hefur Miami nú tapað tveimur leikjum í deildabikarnum og dottið úr leik þar, lið tapaði svo 4-1 í deildarleik gegn Nashville um síðustu helgi og gerði 2-2 jafntefli við Philadelphia í miðri viku. Nashville er nú efst í MLS með tíu stiga forskot á Inter Miami í toppbaráttu deildarinnar. „Akkúrat núna erum við ekki að ná úrslitum, þetta er barátta sem við höfum ekki lent í áður. Barátta sem hefur áhrif á hugarfar hópsins og þess vegna eru hlutirnir ekki að detta með okkur,“ sagði Guillermo Hoyos, þjálfari Inter Miami. „Ég segi það aftur, ég segi alltaf það sama: Þegar við töpum leikjum þá er ábyrgðin mín. Við munum saman að því að finna lausnir, byggja aftur upp á nýtt og sjá hvort við getum ekki snúið þessu við,“ sagði Hoyos, sem tók við þjálfarastarfinu af Javier Mascherano í apríl. Hoyos sagðist „ekkert hafa heyrt“ frá eigendum félagsins um framtíð sína í starfi, í ljósi slæms gengis liðsins. Úrslitin komu ofan á slæm tíðindi fyrir Lionel Messi og liðsfélaga hans hjá Inter Miami, Ian Fray, sem voru sektaðir í gær fyrir að slá og taka andstæðing hálstaki í síðasta leik gegn Philadelphia.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira