Upp­gjörið: Kefla­vík - ÍBV 1-0 | Kefl­víkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Mark Stefans Alexanders Ljubicic tryggði Keflavík sigur á ÍBV á heimavelli.
Mark Stefans Alexanders Ljubicic tryggði Keflavík sigur á ÍBV á heimavelli. vísir/viktor freyr

Stefan Alexander Ljubicic skoraði eina mark leiksins þegar Keflavík fékk ÍBV í heimsókn í 20. umferð Bestu deild karla í dag. Þetta var annar sigur Keflvíkinga í röð.

Leikurinn fór fjörlega af stað og fékk ÍBV fyrsta færi leiksins þegar um þrjár mínútur voru liðnar. Omar Sowe fékk þá boltann úti hægra meginn og átti frábæran bolta fyrir markið en Sesar Örn Harðarson náði ekki að stýra boltanum á markið af fjærstönginni.

Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun en það dró til tíðinda á 23. mínútu leiksins þegar Eiður Orri Ragnarsson fékk boltann úti hægra megin og átti frábæra fyrirgjöf fyrir markið þar sem Stefan Ljubicic stýrði með höfðinu í fjærhornið og kom Keflavík yfir.

Keflvíkingar tóku fljótlega öll völd í leiknum og stýrðu áætlunarferðum inn á markteig ÍBV en tókst þó ekki að bæta við fleiri mörkum fyrir hálfleik en Keflavík leiddi sanngjarnt og sannfærandi í hálfleik 1-0.

Eyjamenn mættu grimmari út í seinni hálfleikinn og greinilegt að hálfleikurinn hafi verið nýttur vel til þess að reyna stilla saman strengi fyrir síðari hálfleikinn því ÍBV kom mun sterkari út í síðari hálfleik.

ÍBV kom sér í fullt af ákjósanlegum stöðum en náðu þó ekki að valda Ásgeiri Orra Magnússyni í marki Keflavíkur neinum töluverðum vandræðum. Eyjamenn þrýstu Keflavík neðarlega en náðu ekki að brjóta þá á bak aftur.

Bæði lið fengu dauðafæri undir lok leiks til þess að tvöfalda forystuna eða jafna leikinn en inn vildi boltinn ekki í seinni hálfleik og fór Keflavík með öflugan 1-0 sigur af hólmi í leik sannkallaðra tveggja hálfleika.

Atvik leiksins

Sigurmark Keflavíkur er það sem skilur á milli í dag. Bæði lið fengu dauðafæri undir lok leiks en markmenn liðana stigu þá upp og læstu búrinu.

Stjörnur og skúrkar

Nacho Heras í vörn Keflavíkur var valinn maður leiksins á vellinum og það er alveg óhætt að taka undir það. Keflavík varðist vel í seinni og stýrði Nacho vörn Keflavíkur vel.

Verð líka að nefna báða markmenna liðana, Ásgeir Orra Magnússon og Ara í Haraldstovu Petersen en þeir áttu báðir lykilvörslur fyrir sín lið í leiknum.

Dómararnir

Sveinn Arnarsson dæmdi sinn fyrsta leik í Bestu deildinni í dag og honum til aðstoðar voru Patrik Freyr Guðmundsson og Jovan Subic.

Fínasta frumraun hjá Sveini í dag og yfir litlu ef einhverju að kvarta frá teyminu í dag.

Stemning og umgjörð

Það var fínasta mæting í Keflavík í dag. Sólin skein og grillið tendrað svo það var allt upp á rúmlega tíu í dag.

Viðtöl

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur

„Sigur, halda búrinu hreinu og þrjú stig“

„Fyrri hálfleikurinn var mjög vel spilaður af okkar hálfu en svo snýst þetta svolítið við í seinni og við erum eiginlega bara mjög slakir hérna í seinni hálfleik“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir sigurinn í dag. 

„Við náðum eiginlega illa að tengja saman sendingar og ÍBV gengur á lagið en hrikalega ánægður náttúrlega með úrslitin. Sigur, halda búrinu hreinu og þrjú stig“

Hvað var það sem breyttist milli hálfleika? 

„Ég í raun bara veit það ekki. Það er eins og við séum einhvernveginn að bíða eftir að eitthvað gerist en aftur á móti þá verjumst við vel og þeir fá þarna dauðafæri hérna í lokin eftir að við fáum dauðafæri þannig á meðan það er bara 1-0 staða þá er maður aldrei rólegur“

Það var ekki mikill munur á liðunum í dag. 

„Það var ekki mikill munur á þessu í dag. Þetta var mjög jafn leikur þannig. Þetta var kannski leikur tveggja hálfleika, við vorum ofan á í fyrri og þeir í seinni en við náðum að skora eitt mark og þar lá munurinn held ég“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson.

Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV.Vísir/Diego

„Fannst strákarnir eiga skilið meira úr þessum leik“

„Ég vill byrja á að óska Keflavík til hamingju með sigurinn í dag“ sagði Aleksandar Linta þjálfari ÍBV eftir tapið í dag.

„Við eyddum fyrstu 45 mínútum leiksins og það er ein af ástæðum eða megin ástæða þess að við töpum í dag“

„Við vorum ekki með góða orku, það var mikið af klaufalegum mistökum, mikið af einvígjum sem við töpum og í raun bara ekki góð frammistaða hjá okkur. Ef við tökum það allt saman þá förum við undir 1-0 í hálfleikinn“

„Í seinni hálfleik var þetta allt annað. Mér fannst við spila vel, við fengum tækifæri og mér fannst strákarnir eiga skilið meira úr þessum leik en bara tap“ sagði Aleksandar Linta.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira