Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. ágúst 2026 15:31 Lise Klaveness er einn helsti andstæðingur Giannis Infantino, forseta FIFA, og hefur margoft gagnrýnt störf hans opinberlega. epa/Amanda Pedersen Lise Klaveness, forseti norska knattspyrnusambandsins, heldur áfram að gagnrýna Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA. Hún segir brottrekstur Kevins Lamour óásættanlegan og sakar Gianni Infantino, forseta FIFA, um óttastjórn.
Lamour, sem var háttsettur hjá FIFA, gagnrýndi fyrirætlanir Infantinos um að selja hlut í mótum sambandsins, eins og HM, opinberlega fyrir um tveimur vikum. Honum hefur nú verið sagt upp störfum hjá FIFA. Klaveness hefur verið ófeimin við að gagnrýna FIFA og hún hefur ýmislegt við brottrekstur Lamours að athuga. „Nú hefur honum verið hent út og okkur er bara ætlað að áfram. Það er óásættanlegt. Þetta er stjórnun sem byggir á ótta,“ sagði Klaveness við AP. Hún segir að Lamour sé besti stjórnandi sem hún hafi hitt í fótboltaheiminum. „Við verðum líka að hvetja stjórn og stjórnendur FIFA til að hlýða ekki skipunum sem þið vitið að eru ekki í þágu fótboltans,“ sagði Klaveness ennfremur. Lamour var náinn samstarfsmaður Infantinos. Eftir að fréttir um áform forsetans um að selja innviði FIFA til einkafjárfesta bárust sagði Lamour að Infantino hefði farið á bak við starfsfólk FIFA og fyrirætlanir hans yrði að stöðva. Maður sem var rekinn Í gærkvöldi var greint frá starfslokum Lamours hjá FIFA. Klaveness er ekki í nokkrum vafa um að honum hafi verið sagt upp vegna gagnrýni hans á Infantino. „Þetta er maður sem var rekinn, ekki einhver sem sagði upp,“ sagði Klaveness og bætti því við að gagnrýni Lamours hafi verið nauðsynleg til að koma í veg fyrir að hugmyndir Infantinos yrðu að veruleika. Noregur er eitt þeirra landa sem hafa lýst yfir vantrausti á Infantino. Kosið verður um forseta FIFA á ársþingi sambandsins á næsta ári. Klaveness gerir ráð fyrir að UEFA muni fylkja sér á bak við frambjóðanda sem fer fram gegn Infantino. Þann 18. nóvember rennur fresturinn til að tilkynna framboð sitt til forseta FIFA út. Næsta ársþing sambandsins fer fram í Marokkó 18. mars á næsta ári.
FIFA Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Sjá meira