Sveindís missti af prinsessuleiknum Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2026 07:32 Ally Sentnor fagnar með Ary Borges eftir að hafa skorað jöfnunarmarkið í gærkvöld. Getty/Kevin Terrell Sveindís Jane Jónsdóttir missti af sérstöku „prinsessukvöldi“ á BMO-leikvangi Angel City í gærkvöld, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Washington Spirit í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Fyrir leik var greint frá því að Sveindís yrði ekki með, vegna ökklameiðsla, og hún hefur því misst af síðustu tveimur leikjum Angel City sem er í harðri baráttu um sæti í átta liða úrslitakeppni deildarinnar. Angel City bauð gestum upp á mikið Disney-prinsessuþema og voru þeir hvattir til að mæta í búningum og stilla sér upp á myndum með prinsessum úr Disney-teiknimyndum. Þá var tónlistaratriði í hálfleik þar sem söngkonan Anika Noni Rose tróð upp en hún talaði fyrir Tiönu í myndinni Prinsessan og froskurinn. View this post on Instagram A post shared by Angel City FC (@weareangelcity) Leikurinn í gærkvöld var þó ekki alveg eins og Disney-ævintýri en þó fór betur en á horfðist hjá heimakonum sem voru 1-0 undir þegar skammt var eftir. Trinity Rodman hafði komið gestunum yfir á 65. mínútu en þegar fimm mínútur voru til leiksloka náði miðjumaðurinn Ally Sentnor að jafna metin með sínu fyrsta marki í búningi Angel City, eftir að hafa spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið í síðasta mánuði. Stuðningsmenn Angel City gátu einnig fagnað því að sjá Sydney Leroux aftur á vellinum en hún kom inná sem varamaður í lokin, eftir 654 daga fjarveru. Þessi 36 ára framherji tilkynnti í mars í fyrra að hún myndi taka sér leyfi til að hlúa að andlegri heilsu. Angel City hefur nú gert þrjú jafntefli í röð og er liðið með 25 stig í 9. sæti, eftir 18 deildarleiki af 30 áður en úrslitakeppnin tekur við. Átta efstu liðin komast í hana og er Angel City tveimur stigum á eftir næsta liði, Seattle Reign. Washington Spirit er hins vegar í 2. sæti með 37 stig en Gotham er efst með 43 stig.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Sjá meira