„Dásamleg manneskja með risastórt hjarta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 17:28 Lionel Messi með mótherja sínum, Jhohan Romaña hjá Leon, í fyrsta leik Messi eftir að hann missti föður sinn. Getty/Megan Briggs Guillermo Hoyos, þjálfari Inter Miami, segir mikilvægt að Lionel Messi fái frið þegar hann snýr aftur til fótboltans eftir andlát föður síns, Jorge Messi.
Jorge Messi lést 8. ágúst á sjúkrahúsi í borginni Rosario í miðhluta Argentínu. Hann var 68 ára. „Ég held að allt þurfi að þróast smám saman; þetta er djúp sorg og það er ekki eitthvað sem breytist á einni nóttu,“ sagði Hoyos fyrir leik helgarinnar. „Þess vegna tel ég að þögnin sé besta nálgunin, þögn, ró og friður, sem gerir honum kleift að finna sínar eigin stundir. Við þurfum að standa með honum og deila þögninni; fyrir mér er þögnin mikilvæg, hún hjálpar manni að finna leiðina áfram. Hann er sannarlega dásamleg manneskja og á dásamlega fjölskyldu,“ sagði Hoyos. Miami coach stresses that Messi needs privacyInter Miami CF manager Guillermo Hoyos emphasized the need for privacy as Lionel Messi navigates a return to football following the passing of his father, Jorge Messi.https://t.co/RxFanBOXPP— ESPN Soccer (@ESPNsoccer) August 14, 2026 Messi kom með flugi á laugardagskvöldi til Rosario, þar sem fréttir í Argentínu sögðu að hann hefði verið viðstaddur einkaathöfn. Hann sneri aftur til Miami og kom aftur til móts við Inter Miami-liðið fyrir leikinn í deildabikarnum gegn Club León á miðvikudagskvöldið. Messi byrjaði leikinn gegn León á bekknum, áður en hann kom inn á völlinn sem varamaður í hálfleik og spilaði seinni 45 mínúturnar. Hann fékk standandi lófaklapp frá Nu-leikvanginum þegar hann gekk inn á völlinn. „Það eru engin orð. Ég finn ekkert orð yfir gildi hans sem manneskju. Við erum ekki að tala um gildi hans sem leikmanns, heldur gildi hans sem dásamlegrar manneskju með risastórt hjarta. Stundum eru orð bara ekki nóg,“ sagði Hoyos um hollustu Messi við liðið. Messi æfði með restinni af liðinu á föstudagsmorgun þegar Inter Miami undirbýr sig fyrir leik gegn Nashville SC á laugardag í MLS-deildinni. ❓Lionel Messi’s status for Saturday is unclear!Guillermo Hoyos said this when asked if #Messi would be available vs Columbus Crew:“He got here a little bit ago so we haven’t had a chance yet to properly talk about it. But we’re happy (he and De Paul) are back.” #InterMiami pic.twitter.com/bxfqNx3ga0— Franco Panizo (@FrancoPanizo) July 31, 2026
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Sjá meira