86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2026 23:15 Rúta brasilíska fótboltaliðsins São Paulo gat ekki sinnt verkefni sínu þennan daginn því hún var stöðvuð og gerð upptæk af lögreglunni. Getty/Gledston Tavares Brasilíska fótboltaliðið São Paulo lenti í óvenjulegri uppákomu þegar flytja átti leikmenn brasilíska liðsins frá hótelinu á flugvöllinn.
Rétt áður en rútan mætti upp á hótelið var hún stöðvuð af lögreglu og um borð fundust 86 kíló af marijúana samkvæmt frétt hjá brasilíska fjölmiðlinum Globo. Marca segir frá. Brasilíska liðið átti að fara á flugvöllinn í Santa Cruz de La Sierra í Bólivíu til að ferðast áfram á útileik. Rútunni með merki félagsins var skipt út fyrir aðra án þess að félagið fengi að vita hvers vegna. Það er líka staðfest að félagið eða leikmenn þess tengjast þessum kolólöglega varningi heldur ekki neitt. Það var ekki fyrr en eftir á sem það fréttist að ástæðan væri sú að lögreglan hefði stöðvað fyrirhugaða rútu þeirra og fundið þetta ógrynni af eiturlyfinu marijúana um borð. Rútan kom frá borginni Cochabamba, leið sem hún ekur daglega. Það var þá sem lögreglan fann fjóra stóra sekki með kubbum af marijúana á stærð við múrsteina. Áætlunin var að ökutækið myndi flytja liðið frá hóteli þess á flugvöllinn þar sem það ætlaði að fljúga áfram til La Paz. Þar mætir liðið Bolivar í Suður-Ameríkubikarnum. Tímaáætlun liðsins á ekki að hafa raskast vegna fundar lögreglunnar þar sem fyrirtækið sem rútan var leigð af sendi fljótt nýja rútu. São Paulo frétti fyrst af haldlagningunni í gegnum fjölmiðla áður en frekari upplýsingar bárust. Bílstjórinn var handtekinn og yfirheyrður af lögreglu. Bólivíska lögreglan hefur einnig hafið rannsókn til að komast að því hvaðan marijúanað kom.
Brasilía Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Fótbolti Fer frá Hlíðarenda til Molde Fótbolti Gaf hundinum sínum loforð og sló heimsmet Hafþórs Sport Fleiri fréttir Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Hafa ekki enn fengið útskýringu á því af hverju Balogun fékk að spila Fer frá Hlíðarenda til Molde Daníel Tristan sáttur eftir að samkeppnin fór til Noregs Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Sjáðu öll mörk helgarinnar í Bestu deildinni Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Sjá meira