Golf

Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Ís­lands­mótinu í golfi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson fagnar hér sigri á Íslandsmótinu í fyrra.
Dagbjartur Sigurbrandsson fagnar hér sigri á Íslandsmótinu í fyrra. GSÍmyndir

Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er með forystu eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Korpúlfsstöðum í ár en hann vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í fyrra.

Dagbjartur lék á 66 höggum í dag eða fimm höggum undir pari. Hann er með tveggja högga forskot eins og staðan er núna en það eru ekki allir búnir að klára fyrsta hringinn.

Dagbjartur byrjaði titilvörnina stórkostlega eða með því að ná fimm fuglum á fyrstu sjö holunum og spila fyrri níu á fjórum höggum undir pari. Hann fékk par á fyrstu sjö holunum á seinni níu en náði svo fugli á sautjándu áður en hann paraði lokaholuna.

Þegar Dagbjartur kom upp úr klúbbhúsinu var hann með tveggja högga forskot á þá Arnór Tjörva Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem spiluðu báðir á 68 höggum eða þremur höggum undir pari. Báðir enduðu þeir mjög vel, Arnór með tvo fugla í röð á fjórtándu og fimmtándu en Tómas með þrjá fugla á fjórum holum frá fjórtándu til sautjándu.

Það má fylgjast með stöðu mála hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×