Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. ágúst 2026 10:31 Englandsmeistarar Arsenal voru fjarri sínu besta gegn Real Betis í æfingaleik í Dublin í gær. getty/Stephen McCarthy Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir að það hafi soðið á leikmönnum liðsins eftir tapið fyrir Real Betis, 1-3, í æfingaleik í gær.
Englandsmeistararnir fengu á sig þrjú mörk í fyrri hálfleik þar sem varnarleikur þeirra var óvenju slakur. Eftir leik sagði Arteta að leikmenn Arsenal hefðu verið fúlir út í sjálfa sig og frammistöðu liðsins í hálfleik. „Þeir eru mjög svekktir. Þeir fengu fyrir ferðina. Það sýður á þeim en það er gott. Þetta er það sem við þurfum,“ sagði Arteta. Hann segir að setja þurfi leikinn í samhengi en hann notaði 25 leikmenn í honum. „Í fyrri hálfleik, með fleiri byrjunarliðsmönnum, voru tveir mjög ólíkir hlutir: hvernig við spiluðum og hvernig við kepptum, því við áttum frábæra kafla á meðan við spiluðum,“ sagði Arteta. „Hvernig við kepptum, sérstaklega í og við vítateiginn okkar í ýmsum atriðum sem við erum vanir, þannig að það eru augljóslega hlutir sem þarf að bæta. Nokkrir jákvæðir punktar til að taka úr leiknum og svo eru slæm úrslit stundum góð til að kveikja enn meira í manni.“ Piero Hincapié skoraði mark Arsenal í leiknum í Dublin í gær eftir sendingu frá nýja manninum, Christos Tzolis. Hann minnkaði muninn þá í 1-2. Næsti leikur Arsenal er gegn Borussia Dortmund á sunnudaginn kemur. Þremur dögum seinna mætir Arsenal Como í síðasta æfingaleik sínum áður en tímabilið hefst. Arsenal mætir Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn sunnudaginn 16. ágúst og tekur svo á móti nýliðum Coventry City í upphafsleik ensku úrvalsdeildarinnar föstudaginn 21. ágúst.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Sjá meira